Ægir - 01.08.1974, Page 13
Útgerð og
aflabrögð
SUÐUR- OG SUÐVESTURLAND
í júní 1974.
Hornaíjörður. Þaðan stunduðu 14 heima-
bátar og 2 aðkomubátar veiðar, allir með
humarvörpu og öfluðu 225 lestir bolfisk og
237 lestir humar, allt miðað við óslægðan fisk,
gæftir voru góðar.
Vestmannaeyjar. Þaðan stunduðu 56 bát-
ar veiðar og 3 aðkomubátar lönduðu þar afla,
alls var landað þar 2099 lestum af bolfiski,
38 lestum af humri og 460 lestum af spærlingi.
•^flinn skiptist þannig: 43 stunduðu botn-
vörpuveiðar og öfluðu 1763 lestir, 3 hand-
faeri og öfluðu 23 lestir, 1 net og aflaði 15
lestir, l spærlingsveiðar og aflaði 460 lestir
sPaerling og 16 lestir bolfisk og 11 bátar stund-
uðu humarveiðar og öfluðu 320 lestir bol-
fisk og 58 lestir humar. Gæftir voru góðar.
Stokkse yri. Þaðan stunduðu 7 bátar veiðar,
allir með humarvörpu og öfluðu 166 lestir
uolfisk og 58 lestir humar. Gæftir voru góðar.
Eyrarbakki. Þaðan stunduðu 8 bátar veið-
ar’ 4 með fiskitroll og 4 með humarvörpu.
^flinn varð alls 28 lestir humar og 176 lestir
olfiskur. Gæftir voru góðar.
florláksliöfn. Þar lönduðu 37 bátar afla sín-
Uru í mánuðinum. Þar af 20 með humarvörpu,
2 með botnvörpu, 2 með línu, 1 með hand-
og 2 með spærlingstroll. Gæftir voru góð-
ar- Aflinn varð alls 809 lestir bolfiskur, 144
ostir humar og 992 lestir spærlingur. Auk
Pessa landaði togarinn Jón Vídalín 69 lest-
Um úr 1 veiðiferð.
Grindavík. Þar lönduðu 67 bátar afla í
mánuðinum, 24 með humarvörpu, 31 með botn-
vörpu, 4 með net og 8 með handfæri. Gæftir
v°ru góðar. Aflinn alls varð 1190 lestir bol-
*skur og 110 lestir humar
Sandgerði. Þar lönduðu 55 bátar afla í mán-
uðinum. 19 voru með rækjutroll, 19 með fiski-
troll, 11 með handfæri, 1 með net, 4 með hum-
arvörpu og 1 spærlingsvörpu. Aflinn alls varð
174 lestir bolfiskur, 110 lestir rækja, 24
lestir humar og 150 lestir spærlingur.
Keflavík. Þar lönduðu 38 bátar afla í mán-
uðinum, 15 með humarvörpu, 7 með fiski-
troll, 10 með handfæri, 2 með net og 4 með
rækjuvörpu. Gæftir voru góðar. Aflinn alls
varð 460 lestir bolfiskur, 62 lestir humar,
11 lestir rækja. Auk þessa lönduðu 2 skut-
togarar 444 lestum af bolfiski úr 4 veiði-
ferðum.
Vogar. Þar lönduðu 2 bátar afla í mán-
uðinum, báðir með humarvörpu, 34 lestum
af bolfiski og 32 lestum af humri.
Hafnarfjörður. Þar lönduðu 4 bátar afla
er nam 234 lestum, 1 síðutogari 373 lestum
og 6 skutskip 1671 lest, allt bolfiskur.
Reykjavík. Þar lönduðu í mánuðinum 6
trollbátar og 17 færabátar, alls 464 lestum
af bolfiski. Ennfremur lönduðu 4 síðutogarar
751 lest af bolfiski úr 4 veiðiferðum og 5
skutskip 1887 lestum af bolfiski úr 7 veiði-
ferðum.
Akranes. Þar landaði 1 trollbátur, 6 færa-
bátar og 10 trillur 636 lestum af bolfiski.
Auk þess Víkingur 297 lestum af bolfiski úr
2 veiðiferðum og Krossvík 365 lestum af bol-
fiski úr 3 veiðiferðum.
Rif. Þar stunduðu 22 bátar veiðar, 1 með
net og 21 með handfæri og öfluðu 230 lest-
ir af bolfiski. Veður var gott allan mánuð-
inn.
Ólafsvík. Þar stunduðu 29 bátar veiðar, 17
með handfæri, 6 með dragnót, 3 með net og
3 með botnvörpu og öfluðu 485 lestir af bol-
fiski. Veðurblíða var allan mánuðinn.
Grundarf jörður. Þar stunduðu 16 bátar veið-
ar, 1 með net, 3 með handfæri og 12 með
Æ G I R — 209