Ægir - 01.08.1974, Page 24
NÝ FISKISKIP
1 þessu tbl. er fjallað um 2
skuttogara, sem nýlega liafa
bætzt við skuttogaraflotann.
Skuttogarar þessir eru byggðir á
Spáni, sömu gerðar.
Ægir óskar eigendum til ham-
ingju með skipin og álvöfn og
fleyjum farsxldar.
Otur GK 5
3. apríl s. 1. kom skuttog-
arinn Otur GK 5 til heima-
hafnar sinnar, I-Iafnarf jarðar,
í fyrsta sinn. Otur GK er ann-
ar í röðinni af 5 skuttogur-
um af minni gerð (undir 500
brl.), sem smíðaðir eru á Spáni
fyrir íslendinga, en fyrsti
skuttogarinn í þessari rað-
smíði var Hólmanes SU 1.
Skipið, sem mælist 451 brl., er
smíðað hjá skipasmíðastöð-
inni Construcciones Navales
Santodomingo S.A. Vigo og
er nýsmíði stöðvarinnar nr.
416. Eigandi skipsins er Port-
land h.f. Hafnarfirði.
Lýsing á skuttogaranum
Hólmanesi SU, sem birtist í
6 tbl. Ægis 1974, á einnig við
þetta skip að öllu leyti. í þeirri
lýsingu slæddust þó inn 2 vill-
ur: akkerisvinda er frá Ib-
ercisa, en ekki frá Carral eins
og fram kemur í lýsingu af
Hólmanesi SU og miðunar-
stöð er af gerðinni Taiyo TD-A
120, en ekki TD-A 130.
Skipstjóri á Otri GK er
Gunnar Auðunsson og 1. vél-
stjóri Bjarni Jónsson. Fram-
kvæmdastjóri útgerðarinnar
er Hilmar Björnsson.
Forsíðumyndin er af Otri
GK 5.
Sigluvík SI 2
7. apríl s.l. kom 3. Spán-
artogarinn af minni gerð til
landsins, en það var Sigluvík
SI 2, sem er eign Þormóðs
ramma h.f., Siglufirði. Þessi
skuttogari er byggður hjá
Skipasmíðastöðinni Astiller-
os Huelva S.A, smíðanúmer
stöðvarinnar nr. 1.
Véla- og tækjabúnaður í
Sigluvík SI er að öllu leyti
samsvarandi og í hinum
tveimur fyrri, þ. e. Hólmanesi
SU og Otri GK, nema hvað
búnaður og fyrirkomulag á
vinnuþilfari er með öðrum
hætti. Á vinnuþilfari eru
4 blóðgunarker með rafknún-
um lyftibúnaði á botni ker-
anna, og ein „roterandi" fisk-
þvottavél. Auk þess er ör-
bylgjustöð af annarri gerð, eða
frá ISR, gerð AP 159.
Skipstjóri á Sigluvík SI er
Hörður Hannesson og 1. vél-
stjóri Ólafur Matthíasson.
Framkvæmdastjóri útgerðar-
innar er Þórður Vigfússon.
220 — Æ GI R