Ægir - 01.02.1975, Blaðsíða 24
Autofisker, sjálf-
virk færavinda
Norska fyrirtækið Fiskeri-
automatikk A/S í Sortland
hefur framleitt sjálfvirka
færavindu síðan 1964. Þótt
liðin séu um 10 ár síðan þessi
vinda kom fyrst á markaðinn
hefur hún ekki náð útbreiðslu
í íslenzkum fiskiskipum. Á bls.
39 er lýsing á tveimur nýjum
fiskiskipum, sem afhent voru
á s. 1. ári, Brynjari IS 61 og
Margréti Þorvaldsdóttur ST
95, en bæði þessi skip eru bú-
in vindum af þessari gerð. Á
s. 1. sumri voru settar Auto-
fisker vindur í tvo báta frá
Hólmavík, Guðrúnu Guð-
mundsdóttur ST 118 og Sigur-
björgu ST 55, 3 vindur í hvorn
bát. Einnig má geta þess að
sumarið 1973 var sett ein
vinda í m/s Örn ÍS 18 til
reynslu og var hún einnig í
gangi s. 1. sumar í umræddum
bát.
Vindan er drifin af 180 W
jafnstraumsmófcor, 12 eða 24
V, með gír. Snúningshraði
driföxuls er 50—75 sn/mín,
sem gefur sama snúnings-
hraða á færaskífu. Á vindu-
ásnum er 3 kgm rafsegul-
tengsli og er tengsli þetta að-
alhluti sjálfvirkninnar. AUt
drifkerfið ásamt stýrikerfi er
innbyggt í kassa úr trefja-
plasti með loki úr seltuþolnu
áli. Á lokinu er stjórnbúnaður
eins og sjá má á meðfylgjandi
mynd.
Stjómbúnaður samanstend-
ur af allmörgum snerlum og
rofum og mætti þar nefna:
aðalrofa neðst til hægri á lok-
inu; „tengslarofa“ efst fyrir
miðju og dýpisstillingu, vísir
lengst til hægri. Aðrir snerlar
eru fyrir skakstillingu (skak-
lengd, skakhraði), átaksstill-
ingu og sjálfvirkan drátt. Ytri
mál vindunnar eru ca. 30 x 30
x 75 cm og þyngdin um 60
kg.
Vinnuaðferð vindunnar er í
stórum dráttum eftirfarandi:
Dýpisvísir er stilltur á veiði-
dýpi (0—170 faðmar) og fær-
inu rennt út með því að þrýsta
á tengslanofa og stanzar fær-
ið er dýpisvísir kemur á „0“.
Þá byrjar vindan að skaka
skv. stillingu þangað til færið
þyngist yfir stillt hámark.
Færið dregst sjjálfkrafa inn
þegar ákveðnum stillanlegum
þunga er náð og stanzar slóð-
inn við yfirborð.
Ekki er starfrækt neitt um-
boð hér á landi fyrir Auto-
fisker, en framleiðandi hefur
haft samband við hóp manna
víðsvegar um landið, sem ann-
ast milligöngu við framleið-
anda. Verð vindunnar er ca.
8.000 N. kr. F. O. B. eða um
190.000 ísl. kr. miðað við nú-
verandi gengi. Framleiðandi
veitir eins árs ábyrgð.
38 — Æ GIR
J