Ægir - 15.04.1975, Side 8
Sjávarútveguriim 1974
Hér birlast lokag'rcinarnar í g'rcinaflokknuin
uni sjávui'úiveqinn 1974
Gunnar Guðjónsson:
Hraðfrystiiðnaðiarinn 1974
Árið 1974 byrjaði
illa fyrir íslenzka
hraðfrystiiðnaðinn.
Qm svipað leyti og
kjarasamningar voru
undirritaðir við
verkalýðshreyfing-
una, 26. febrúar
1974, var verðlag á
frystum sjávarafurð-
um, einkum á fisk-
blokkum, að lækka á
mikilvægasta mark-
aðssvæðinu Banda-
ríkjunum. 1 lengstu lög höfðu menn verið að
vona, að ekki kæmi til verðlækkunar á þess-
um markaði, sem í fjölda ára hefur tekið við
meiru en % hluta af öllum útflutningi tslend-
inga á frystum fiskflökum og fiskblokkum á
stöðugt hærra verði. En innri efnahags-
vandamál Bandaríkjamanna, verðbólga og
mikið atvinnuleysi voru komin á svo alvar-
legt stig síðla árs 1973 og í upphafi ársins
1974, að samdráttaráhrif voru farin að gera
vart við sig á flestum sviðum viðskipta og at-
vinnulífs í Bandaríkjunum, þ. á m. í sölu
hraðfrystra sjávarafurða. Birgðir söfnuðust
fyrir og sölutregðu gætti, er jókst eítir því
sem á árið leið.
Ofan á óraunsæja kjarasamninga er gerðir
voru í ársbyrjun, lagðist hið erfiða ástand
markaðanna með fullum þunga á hraðfrysti-
iðnaðinn og voru rekstrarerfiðleikar orðnir
mjög miklir þegar vorið 1974. Stjórnvöldum
114 — Æ GIR
var þetta ljóst, en vegna óvissu í stjórnmálum
dróst það fram á haust að gripið væri til
nægilega róttækra efnahagsaðgerða til a®
mæta vanda útflutningsatvinnuveganna. Þ°
höfðu verið sett bráðabirgðalög í maí 1974,
er fólu í sér nokkurt viðnám gegn stöðugt
vaxandi verðbólgu er var að sliga atvinnU"
vegina. Þrátt fyrir framangreindar aðgerðu
og nokkurt gengissig á árinu kom í ljós undm
lok ársins að enn var frekari aðgerða þörf, eí
útflutningsatvinnuvegimir áttu ekki að stöðv-
ast.
Eigi er enn vitað, hvað árið 1975 muni bera
í skauti sínu hvað varðar rekstur og afkomu
harðfrystiiðnaðarins. Óvissuatriðin eru mörg-
Eigi er enn séð fyrir endann á því hvort tak-
ast muni að hægja á verðbólguhjólinu, en Þa0
er algjör forsenda þess að unnt sé að reka
hraðfrystihús landsins með eðlilegum haettr
Þá er ekki að vita hvernig markaðirnir kunna
að þróast. Miklir erfiðleikar eru á sölu hrað-
frystra sjávarafurða í Vestur-Evrópu og erfht
að segja fyrir um, hvernig mál kunna að
þróast í Bandaríkjunum.
Framleiðslan.
Árið 1974 voru svo til öll hraðfrystihuS
landsins orðnar aðilar að Sölumiðstöð hrað'
frystihúsanna og Sjávarafurðadeildar SlS-
Framleiðsla þessara aðila s. 1. ár er þesS
vegna því sem næst heildarframleiðsla þjó®'
arinnar á hraðfrystum sjávarafurðum 11
rætt ár, en hún var samtals 94.307 smálestm,
sem var 5.391 smálest eða 6,0% meira en
árið áður.
Eftir helstu afurðaflokkum hefur frarn'
leiðsla S. H. og SÍS verið sem hér segir s.
2 ár;