Ægir - 15.04.1975, Side 26
Huginn VE 55
30. janúar s. 1. kom Huginn
VE 55 í fyrsta sinn til heima-
hafnar sinnar, Vestmanna-
eyja. Huginn VE er systur-
skip Gullbergs VE, byggt hjá
Baatservice Verft A/S, Man-
dal Noregi, smíðanúmer 617,
og er nr. 2 í raðsmíði 4ra
skipa hjá stöðinni fyrir inn-
lenda útgerðaraðila. Eigandi
skipsins er Huginn h.f. Vest-
mannaeyjum.
Huginn VE er útbúinn til
nóta-, tog- og netaveiða og er
347 rúmlestir að stærð. Mesta
lengd 43.17 m, breidd 8.20 m
og dýpt að aðalþilfari 4.20 m.
Aðalvél, 990 hö, og skipti-
skrúfubúnaður er frá Wich-
mann, hjálparvélasamstæður
eru tvær frá Scania, 175 ha
með 130 KVA rafölum, en
auk þess er Deutz hafnarljósa-
vél. Tvær 150 ha Ulstein hlið-
arskrúfur eru í skipinu.
Vindubúnaður er frá Fish and
Ships Gear, kraftblakkar-
kerfi frá Triplex of fiskidæl-
ur frá Rapp.
Skipið er búið Ulstein and-
veltigeymum, Atlas fersk-
vatnsframleiðslutæki og Fin-
sam ísvél. Af tækjum í brú
má nefna 100 sml. ratsjá og
þráðlausa netsjá frá Furuno;
sjálfvirkan Loran C og dýpt-
armæla frá Atlas; Simrad
Havsonar og fjarskiptatæki
frá Sailor.
Að öðru leyti vísast í lýs-
ingu á Gullbergi VE (sjá 4.
tbl. ’75), en þessi tvö skip
eru að öllu leyti eins, bæði
fyrirkomulag og tækjabúnað-
ur. 1 þeirri lýsingu slæddust
þó inn villur, sem rétt þykir
að leiðrétta. 1) Mál á tog-
tromlum eru 325 mm° x 1200
mm“ x 1350 mm; 2) losunar-
krani framan við yfirbygg'
ingu er Hiab 1560 (stærsta
gerð), en aftast á bátaþilfari
er Hiab 950; 3) örbylgjustöð
er af gerðinni Sailor RT 143.
Skipstjóri á Hugin VE er
Guðmundur Ingi Guðmunds-
son, sem jafnframt er fram-
kvæmdastjóri útgerðarinnar,
og 1. vélstjóri er Óli Sveinn
Bernharðsson.
ÞEIR FISKA
SEM RÓA MEÐ VEIÐAFÆRIN FRÁ
SKAGFJÖRÐ
132 — Æ GI R