Ægir

Volume

Ægir - 15.12.1975, Page 9

Ægir - 15.12.1975, Page 9
Aflatryggingasjóður. Samkvæmt endurskoðuðum reikningum hinna almennu deilda og jöfnunardeildar Aflatryggingasjóðs, hafa tekjur, svo og greiðslur vegna aflabrests, skipzt þannig undangengin þrjú ár: Aflatryggingasjóður — almennar deildir. 1972 1973 1974 Tekjur: millj kr. millj.kr. millj.kr. Útfl.gjald sjávarafurða 145,6 226,6 280,7 Mótframlag ríkissjóðs .... 38,9 59,1 72,7 Vaxtatekjur 17,3 18,0 28,9 Samtals tekjur 201,8 303,7 382,3 Greiðslur vegna áflabrests hin sömu ár voru þessar: Almenn deild bátaflotans 219,5 189,4 347,6 Almenn deild togaraflotans . 37,2 51,3 60,5 Samtals gjöld 256,7 240,7 408,1 Samkvæmt framangreindu hafa greiðslur vegna aflabrests þessi þrjú ár numið 17,7 millj. króna umfram tekjur. Ráðstöfunarfé sjóðsins þessi ár hefur verið sem sér segir: 1972 1973 1974 milljkr. millj.kr. millj.kr. 542,2 576,2 699,3 Staða hinna almennu deilda og jöfnunar- deildar hinn 31. okt. s. 1. var þessi: millj. kr. Inneign hjá ríkissj. og í banka..... 407,8 Tekjur af útfl.gj. og mótframlag 1/1—31/10 441,1 H- bótagreiðslur 1/1—31/10 .......... 469,7 Ráðstöfunarfé 1. 11. 1975 379,2 Af ofangreindri bótaupphæð eru samtals 143.3 millj. vegna ársins 1974. Ógerlegt er á þessu stigi að nefna nokkrar töiur um bætur sem eftir er að greiða fyrir árið 1975. Þær geta numið nokkrum tugum milljóna króna. Gera má ráð fyrir að heildar- bótagreiðslur á þessu ári geti numið 535—555 milljónum króna. Á sama hátt má áætla heild- artekjur þessa árs 525—530 milljónir króna. Það sem veldur þessum umskiptum á hag sjóðsins undanfarin tvö til þrjú ár, er afla- brestur skipa frá stærstu útgerðarbæjum landsins á vetrarvertíð. Þessar verstöðvar hafa jafnan staðið undir verulegum hluta tekna sjóðsins, en á sama hátt taka þær af skiljan- legum ástæðum til sín verulegar bætur, þeg- ar illa gengur, vegna hins mikla fjölda skipa, sem þaðan er gerður út. í öðru lagi hefur sjóðurinn að sjálfsögðu þolað hlutfallslegt tekjutap vegna verðlækk- ana afurða á erlendum markaði. Þá er komið að áhafnadeild Aflatrygginga- sjóðs. Tekjur deildarinnar eru 1,5% útflutn- ingsgjald sjávarafurða. Tekjur undanfarin þrjú ár hafa verið sem hér segir: 1972 1973 1974 millj kr. millj.kr. millj.kr. 1.5% útfl.gjöld . 175.8 268.5 331.4 Vaxtatekjur .... 1.5 3.8 4.9 Samtals 177.3 272.3 336.3 Greiðslur áhafnadeildar sömu ár: Til báta..... 158.3 198.4 352.7 Til togara ......... 14.6 34.1 38.0 Samtals 172.9 232.5 390.7 Staða deildarinnar 31. okt. s.l. var sem hér segir: millj. kr. Inneign hjá ríkissj. og á bankareikn. 1/1 1975 ................... 79.1 Tekjur af útfl.g. 1/1—31/10 ............ 423.5 —r- greiðslur .......................... 432.4 Ráðstöfunarfé 1. 11. 1975 70.2 Gera má ráð fyrir, að tekjur áhafnadeildar á þessu ári nemi 500—515 millj. króna og að greiðslur muni verða 510—520 millj. króna. Fiskifélagið hefur nú um nokkurra ára skeið annast innheimtur iðgjalda til lífeyris- sjóða sjómanna. Fer sú innheimta fram í sam- bandi við greiðslur áhafnadeildar. ÆGIR — 391

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.