Ægir - 15.09.1977, Page 12
valdið því, að stofnkostnaður útgerðar hefur
verið tvisvar til þrisvar sinnum hærri en þurft
hefði að vera væri levfður innflutningur skipa.
Bandaríkin er sú þjóð, sem mest hagnast á
200 mílna efnahagslögsögu a.m.k. ef miðað er
við stærð svæða, sem falla einstökum þjóðum
í skaut. Vegna þess hversu hlutdeild þeirra
í fiskveiðum innan þessarar lögsögu er lítil
eru vaxtarmöguleikar bandarísks sjávarútvegs
feikna miklir. Eftirfarandi tafla sýnir þetta
nokkuð:
Veiðar Bandaríkja- Áætluð
manna innan 200 afrakstursgeta
mílna árið 19731 fiskstofna innan
200 mílna
(þús. tonn) (þús. tonn)
Botnfiskur 194 3.655
Túnfiskur 293 907
Lax 97 136
Skelfiskur 74 188
Krabbadýr 320 525
Ýmsar tegundir 241 5.897
1.159 11.308
!) Veiðar í viðskiptalegum tilgangi. Sportveiðar
eru allríkur þáttur í veiðum Bandaríkja-
manna. Ái-ið 1970 er talið að sportveiði hafi
numið um 170 þús. tonnum.
Eins og sjá má af þessari töflu eru það eink-
um í tveim tegundaflokkum sem vaxtamögu-
leikar eru miklir þ. e. í veiðum botnfiskteg-
unda og ýmissa tegunda. Nokkuð er óljóst
hvað átt er við með ýmsum tegundum, en und-
ir þær falla m.a. síld, sardínur og loðna, sem
nokkuð er af, svo og ýmsar tegundir, sem eru
okkur framandi, en eru vel gjaldgengar á
markaði. Samt sem áður eru vaxtamöguleikar
í veiðum botnfisktegunda það atriði, sem kem-
ur til með að snerta okkur mest. Samkvæmt
þessum tölum geta Bandaríkjamenn 18-faldað
afla sinn af þessum tegundum. Árið 1973 var
neyzla þessara tegunda í Bandaríkjunum um
900 þús. tonn miðað við fisk upp úr sjó. Miðað
við að hægt sé að afla 3.655 þús. tonna innan
200-mílna lögsögunnar eru aflamöguleikar um
f jórfalt meiri en neyzlunni nemur. Hvernig ein-
stakar tegundir koma út, er ekki hægt að sjá,
en ljóst er að Bandaríkin geta verið sjálfum
sér nóg og meir en það jafnvel þótt gert sé
ráð fyrir allverulegri neyzluaukningu.
Aðgerðir:
Hér að framan var getið meginmarkmiða
sem Bandaríkjamenn hyggjast stefna að í fisk'
veiðum sínum. í samræmi við þessi markmið
hefur verið gefinn úr fjöldi nefndarálita, at-
hugana, reglugerða og laga, sem miða að ÞV1
að ná þessum markmiðum eða öðrum, sem
þeir hafa sett sér til skemmri tíma, svo sem
að bandarískur sjávarútvegur geti annað þeirn
aukningu, sem verður á eftirspurn eftir fisk'
afurðum á bandarískum markaði fram til 1985.
Fram til þessa hafa aðgerðir einkum beinst
að því að koma á laggirnir kerfi, sem trygg1
getur að fyrsta markmiðinu þ. e. efhng fislí'
stofna verði náð. Grundvallarplagg í því efm
var mikill lagabálkur, sem þingið samþykkU
árið 1976 um verndun fiskstofna og stjórnun
veiða. (Fishery management and conservation
act of 1976). Þessi lög tóku gildi 1. marz í ár-
Of langt mál yrði að gera þessum lögum ski
hér en í þeim er sett fram m.a. hvernig stjórn-
kerfi veiðanna skuli uppbyggt, hvemig ákvarð-
anir skulu teknar um stjórnunaraðgerðm,
hvernig beri að standa að samningum við ut'
lendinga um veiðar í bandarískri lögsögu og
veiðar á farandstofnum, refsiákvæði o.s.í’ v;
Tvennt er það í lögum þessum, sem athyg11
vekur. Gert er ráð fyrir að erlendir aðilsr-
sem veiðar stunda, verði skattlagðir. Hverju
skipi, sem veiðileyíi fær er gert að greiða
dal á hverja rúmlest skips. Ef um er að ræða
móðurskip er gjaldið % dalur á hverja rúm-
lest. Hjálparskip skulu greiða 200 dali. E)in
fremur er gert ráð fyrir að þeir sem veiðai
stundi greiði 3%% af aflaverðmæti síns afla-
Aflaverðmætið er fengið með hliðsjón af ^
alverði á bandarískum markaði. Þá er eirnug
gert ráð fyrir að erlend veiðiskip kosti eft11
litsmenn, sem fylgist með veiðum þeirra. Ge
er ráð fyrir að tekjur af þessum skatti vel
milli 20 og 30 millj. dala.
Hitt atriðið, sem athygli vekur er hvernig
staðið er að stjórnun veiðanna. í lögunum e
settar fram viðmiðanir eða staðlar um hva
atriði beri að hafa hliðsjón af, en síðan er sv
fyrir mælt að yfirvöld geri stjórnunaráæt
(management plan) um hvern einstakan flS
stofn, og hvernig beri að standa að nýtin§ ^
hans. Þetta kann að reynast erfitt í
kvæmd en þegar hafa verið gerðar slíkar a
anir um stjórnun á veiðum allmargra st°
Þessar áætlanir eru til langs tíma og
verður
322 — ÆGIR