Ægir - 01.05.1980, Page 10
Verðtryggð
verðbólga
Samkvæmt upplýsingum þeim, er fram koma í
þessu árlega töflublaði Ægis hefur afli fisks og
annarra sjávardýra verið meiri á árinu 1979 en
nokkru sinni fyrr eða 1.648,6 þús. lestir borið saman
við 1.566,2 þús. lestir á árinu 1978. Afla-aukningin
nemur 5 af hundraði. Nokkuð dróst fiskiskipa-
stóllinn saman á árinu, bæði að fjölda skipa og
rúmlestatölu. Þessa gætti mest í stærðarflokkum
undir 100 br. rúmlestum. Fækkar þar um 31 skip.
Eins og undanfarin nokkur ár kveður mest að
loðnuaflanum, sem nam 963,6 þús. lestum á móti
966,7 þús. lestum 1978. Hlutur loðnu í heildarafl-
anum hefur hinsvegar minnkað nokkuð eða úr
61,7% 1978 í 58,4% á s.l. ári. Þá varð og samdráttur
í afla kolmunna og spærlings.
Hinsvegar varð veruleg aukning á afla flestra
tegunda botnfiska ef spærlingurinn er frátalinn,
þótt mest muni um karfa, ufsa, ýsu og þorsk.
Jókst afli hefðbundinna botnfisktegunda um rétt
rúmlega 100 þús. lestir í 581,7 þúsund. Er það mesti
afli íslenzkra skipa, sem um getur.
Þótt vitað væri um sterka árganga þorsks á
miðunum, var þó vart búizt við þeirri aflaaukningu,
sem raun bar vitni, úr um 320 þús. lestum í 360 þús.
lestir, þar sem gripið var til strangari veiðitak-
markana á s.l. ári en undanfarin ár. Er orsakanna
vafalaust að leita í þeim verndaraðgerðum sem
verið hafa í gildi raunar allt frá árinu 1973. Hins-
vegar var gert ráð fyrir auknum karfa- og ufsaafla,
einkum vegna þeirrar verðjöfnunar og verðbóta,
sem stofnað var til á s.l. ári á þessar fisktegundir.
Ástand ýsustofnsins var allgott. Má ekki sízt
þakka það þeim reglum um möskvastærð í botn-
vörpu og dragnót, sem verið hafa í gildi nú um
nokkurra ára skeið.
Framleiðsla og útflutningur fiskafurða hélzt að
verulegu leyti í hendur við aukinn afla, enda þótt
nokkurrar tregðu tæki að gæta á helztu fiskmörk-
uðum er líða tók á árið - og birgðasöfnunar.
Þess má geta, að smávægileg aukning varð a
framleiðslu mjöls og lýsis, þrátt fyrir minni afla
bræðslufisks. Má efalaust þakka það betri tækja-
búnaði verksmiðja, svo og því, að loðnuveiðar
hófust ekki á s.l. sumri fyrr en ástand loðnunnar
til vinnslu var orðið allgott.
Allmikil aukning varð á útflutningi ísfisks eða
um 11,5 þús. lestir í tæplega 35 þús. lestir. Verðlag
var hagstætt.
Þrátt fyrir mikinn afla á s.l. ári og það sem af er
þessu ári eru þó ýmsar blikur á lofti og fara vaxandi-
Ýmist stafa þær af erlendum toga, svo sem síhækk-
andi verði á olíu og ýmsum öðrum rekstrarvörum
og harðnandi samkeppni á helztu markaðssvæðum
og löndum. Er bæði um að ræða mikinn opinberan
stuðning við sjávarútveg helztu keppinauta okkar
og afleiðingar útfærslu strandríkja í 200 mílur.
sem raskað hafa fyrra markaðsjafnvægi. Nokkuð
hefur og borið á samdrætti neyzlu fiskafurða, sem
og annarri einkaneyzlu, sem án efa stafar að stórum
hluta af orkukreppu og vaxandi verðbólgu meðal
viðskiptaþjóða okkar.
Að öðru leyti, og er sízt minna um vert, stafa
þessar blikur af innlendum toga og þá einkum
hinni miklu og vaxandi verðbólgu, er hér geisar.
Er hérviðramman reipaðdraga, þarsem við höfum
valið okkur að verðtryggja verðbólgurta.
Kaupgjald er vísitölubundið. Fiskverðshækkanir
hafa fylgt í kjölfarið. Verðbótaþáttur vaxta hækkar
stöðugt. Þrátt fyrir það minnkar sparifjármyndun.
Þar sem þessar hækkanir eru fiskvinnslunni ofviða.
er gengi krónunnar látið síga eins og það er nefnt.
Sá er þó galli á gjöf Njarðar, að fiskvinnslan verður
strax að taka á sig fyrrnefndar hækkanir, en gengi^1
sígur jafnt og þétt á verðlagstímabilinu. Nauðsyu-
legu jafnvægi er ekki náð fyrr en í lok tímabilsins-
ef það hefur þá náðst. Bilið verður að brúa me^
lántökum. Hið sama endurtekur sig á næsta verð-
og kaupgjaldstímabili.
Þessi framvinda getur ekki endað nema á einu
veg, ef við sjáum ekki að okkur í tíma: fiskvinnslan
og lánastofnanir komast í þrot.
m.hi-
250 - ÆGIR