Ægir - 01.05.1980, Blaðsíða 65
strokka fjórgengisvél með forþjöppu og eftirkæli,
405 hö við 1500 sn/mín. Vélin knýr beintengdan
Marcon B 604 H riðstraumsrafal, 256 KW (320
KVA), 3x380 V, 50 Hz, og er auk þess búin Marco
DC 0U1-P114 aflúttaki.
Hjálparvé! b.b.: Cummins, gerð KT 1150 G, sex
strokka fjórgengisvél með forþjöppu og eftirkæli,
405 hö við 1500 sn/mín. Vélin knýr beintengdan
Vlarcon B 604 H riðstraumsrafal, 256 KW (320
KVA), 3x380 V, 50 Hz.
Stýrisvél er rafstýrð og vökvaknúin frá Tenfjord
af gerð I-160-2ESG 420, snúningsvægi 3600 kpm.
Stýrisvélin tengist Becker-stýri af gerð S-A 1350/
165 F2.
Skipið er búið tveimur vökvadrifnum hliðar-
skrúfum frá Schottel.
Tœknilegar upplý.iingar (livor skrúfa):
Gerð ...... ...........
Afl ...................
Blaðafjöldi/þvermál ...
Niðurgírun ............
Snúningshraði .........
Vökvaþrýstimótor ......
Afköst mótors .........
S 152 LK
280 hö
4/1000 mm
1.9:1
632 sn/mín
Sauer SMF 27
280 hö við 1200 sn/mín
I skipinu eru tvær sjálfhreinsandi skilvindur frá
Vlitsubishi af gerðinni SJ 700, sem eru til hreins-
u°ar á smurolíu og svartolíu. Ræsiloftþjöppur eru
tvær frá Espholin af gerð H 3S, afköst 17.1 m3/ klst.
v‘ð 30 kp/cm2 þrýsting hvor þjappa. Fyrirvélarúm
°g loftnotkun véla eru tveir rafdrifnir blásarar frá
Nordisk Ventilator, afköst 13500 m3/klst og 4500
m3/klst.
Rafkerfi skipsins er 380 V riðstraumur fyrir raf-
mótora og stærri notendur, en 220 V riðstraumurtil
'jósa og almennra nota í íbúðum. Fyrir,220 V kerfið
eru tveir 60 KVA spennar 380/220 V. Rafalar
tengjast samkeyrslubúnaði. í skipinu er 60 A,
3x380 V landtenging.
Tankmælikerfi er frá Peilo Teknikk A/S af gerð
Soundfast, aflestur í vélgæzluklefa. Fyrir vélarúm
er Halon 1301 slökkvikerfi.
Ibúðir eru hitaðar upp með vatnsmiðstöð, sem
ær varma frá kælivatni aðalvélar og til vara er
rafmagnsketill frá Rafha með 22 KW rafelementi.
yrir heitt vatn er 200 1 hitakútur með 4.5 KW
rafelementi, sem einnig má tengja inn á mið-
stöðvarkerfið. Fyrir vinnuþilfar eru tveir vatns-
hitablásarar. íbúðir eru loftræstar með einum raf-
drifnum blásara frá Nordisk Ventilator, afköst
2340 m3/klst, og í loftrás er 5.1 KW rafelement.
Fyrir eldhús er sérstakur gufugleypir og fyrir snyrt-
ingar og stakkageymslu er sogblásari. Tvö vatns-
þrýstikerfi frá Speck & Co af gerð Hydramax 20
eru fyrir hreinlætiskerfi, annað fyrir sjó en hitt fyrir
ferskvatn, stærð þrýstigeyma 150 1.
Fyrir hliðarskrúfur er sjálfstætt vökvaþrýstikerfi
með 315 1 geymi og tveimur áðurnefndum véldrifn-
um dælum sem drifnar eru af aðalvél um deiligír.
Fyrir vindur, kraftblakkar- og fiskidælubúnað er
sjálfstætt vökvaþrýstikerfi með 1500 1 geymi og
áðurnefndum véldrifnum dælum, þ.e. fimm dælur
drifnar af aðalvél um deiligír, og tveimur raf-
drifnum Vickers 25 V vökvaþrýstidælum, sem eru
varadælur fyrir vindubúnað, og eru jafnframt fyrir
átaksjöfnunarbúnað togvindna. Fyrirpokalosunar-
krana er sjálfstætt rafknúið vökvaþrýstikerfi, aftast
í b.b.-síðuhúsi, með tveimur dælum, sem drifnar
eru af 18.5 KW rafmótorum og fyrir löndunar-
krana eru tvö rafknúin vökvaþrýstikerfi í hval-
bak, annað fyrir sjálfan kranann (18 KW) en hitt
fyrir vindu á krana (55 KW). Fyrir blóðgunar-
ker, vökvaknúnar lúgur o.fl. er sjálfstætt rafknúið
vökvaþrýstikerfi í stýrisvélarrúmi með tveimur 5.5
KW dælum og fyrir Gearworks hjálparvindu er ein
11 KW rafdrifin dæla, sem tengist sama kerfi.
Tvær rafdrifnar dælur eru fyrir stýrisvél.
Fyrir lestar eru tvö kælikerfi, hvort með sinni
kæliþjöppunni frá Bitzer. önnur er af gerð VI W,
afköst 10475 kcal/klst við -H0°C/-/+40°C, en hin
af gerð V W, afköst 4455 kcal/klst við +10°C/-/
+40° C, kælimiðill er Freon 12. Fyrir matvæla-
geymslur (kæli og frysti) er ein Bitzer III L kæli-
þjappa, afköst 1195 kcal/klst við +20°C/-/+40°C,
og er kælimiðill Freon 502.
Ibúðir:
í íbúðarými undir neðra þilfari eru tveir 2ja
manna klefar. í íbúðarými á neðra þilfari er fremst
geymsla, en s.b.-megin þar fyrir aftan eru tveir 2ja
manna klefar, tveir eins-manns klefar og aftast
hlífðarfatageymsla. B.b.-megin eru fremst tveir 2ja
manna klefar, þá einn eins-manns klefi, borðsalur,
eldhús og aftast matvælafrystir. Fyrir miðju í
íbúðarými er salernisklefi fremst ásamt snyrtingu
með tveimur sturtuklefum og einum salernisklefa,
en aftantil er matvælakælir til hliðar við borðsal.
ÆGIR — 305