Ægir - 01.05.1980, Side 22
Togararnir 1979
Stóru togararnir
Hrönn RE-10 sem legið hafði í fimmtán mánuði
fór á veiðar hinn 23. marz undir nýju nafni, Viðey
RE-6, og voru því stóru togararnir einum fleiri í
gangi núna en árið áður. Þegar borinn er saman afli
á togtíma tvö síðastliðin ár kemur í ljós að hann
hefur aukist úr 964 kg í 1164 kg„ eða um 20,7%.
Athygli vekur einnig hve notkun flotvörpunnar
dróst saman milli ára. Sóknin í fyrra var aðeins 39%
og aflinn 42% þess sem var 1978, eins og sjá má af
meðfylgjandi töflu.
Minni togararnir
A árinu voru tveir af fyrstu litlu skuttogurun-
um seldir til Frakklands, þeir Barði NK 120 og
Brynjólfur ÁR-4 (áður Hegranes), og aðrir heppi'
legri fengnir í þeirra stað. Þótt ekki berist togskýrsl-
ur frá öllum minni togurunum - því miður, - Þa
berast samt nógu margar til þess, að gera megi sér
allgóða grein fyrir heildinni.
Ætla má, að togtími minni skuttogaranna haf>
verið 237 þúsund klst á síðastliðnu ári á móti 221
þúsundi árið áður. Hefur þá afli á togtíma aukist
úr 731 kg. í 876 kg. eða 19,8%. Er sú útkoma mjög
í samræmi við þá stóru. Öllu verra er að áætla hlut
flotvörpunnar og ber margt til svo sem áhrif þorsk-
veiðibanna þá fáu daga sem tilefni gafst til notkunar
veiðarfærisins. En vel má láta sér til hugar koma, að
ekki hafi fengist nema 6 þúsund tonn í fyrra á mót>
14 þúsund árið áður, eða 43% þess sem var. Tekið
skal fram að hér er allsstaðar átt við fiskinn
slægðan með haus.
j I þjónustu fiskveiða og
fiskiðnaðar
Pétur 0 Nikulásson
FYRIR FISKIÐNAÐINN:
GBO veiöarfæri og flot fyrir ISTEINBOCK gaffallyftarar.disel-,I Fyrir pækilsöltun: fiskkassar
aflamenn_ bensin-, gas- og rafmagnslyftarar úr stáli, galvaniseraöir og málaöir
pnifl Pétur 0 Nikulásson
* TRYGGVAGÖTU 8 SIMAR 22650 20110