Ægir - 01.05.1980, Síða 66
í þilfarshúsi á efra þilfari er fremst setustofa,
en aftantil íbúö skipstjóra og salernisklefi. íbúð
skipstjóra skiptist í setustofu, svefnklefa og snyrt-
ingu. Aftast í brú er talstöðvarklefi.
Útveggir og loft í íbúðum eru einangraðir með
100 mm glerull og klætt innan á með plasthúð-
uðum spónaplötum og vatnsþéttum krossviði með
álímdu harðplasti.
Vinnuþilfar:
Vökvaknúin fiskilúga er framan við skutrennu og
veitir aðgang að tvískiptri fiskmóttöku, um 34 m3
að stærð, aftast á vinnuþilfari (aðgerðarrými).
1 efri brún skutrennu er vökvaknúin skutrennuloka,
sem er felld lóðrétt niður. Fiskmóttöku er lokað
vatnsþétt að framan með þili og á því eru vökva-
knúnar rennilúgur til að hleypa fiskinum í blóðg-
unarrennu fyrir framan móttökuna.
Framan við fiskmóttöku eru fjögur blóðgunar-
ker með vökvaknúnum lyftibúnaði til að hleypa
fiskinum í rennur fyrir framan kerin. í stað þess
að kasta fiskinum upp í blóðgunarkerin eftir
blóðgun, er hann settur á lárétt færiband, þversum
fyrir framan fiskmóttöku, sem flytur fiskinn yfir í
b.b.-síðu og inn á hallandi færiband, sem flytur
síðan fiskinn inn á lárétt færiband, þversum yfir
afturhluta blóðgunarkera. Með lokubúnaði, sem
stjórnað er fyrir framan fiskmóttökuna, er hægt að
setja í einstök blóðgunarker.
Fjögur aðgerðarborð, með aðstöðu fyrir sam-
tals 8 menn, eru fyrir framan blóðgunarker, og
frá aðgerðarborðum liggja slógrör niður í slóg-
stokk, sem liggur þversum yfir skip. Eftir aðgerð
flytzt fiskurinn með færibandi að þvottakeri s.b,-
megin á vinnuþilfari, og síðan með öðru færibandi,
Hluli búnaðar á vinnuþilfari.
306 — ÆGIR
sem flytur að lestaropum. Fyrir karfa er sérstakt
færiband, sem flytur frá fiskmóttöku, milli blóðg-
unarkera, og inn á færiband sem flytur að lestar-
opum. öll færibönd eru rafdrifin.
í skipinu eru tvær sjóísvélar frá Stálver, af gerð-
inni Seafarer TE 16, afköst 6.5 t á sólarhring hvor
vél. ísvélarnar eru í sérstökum klefa s.b.-megin
aftantil á vinnuþilfari.
Loft vinnuþilfars er einangrað með glerull og
klætt er með vatnsþéttum krossviði.
Fiskilestar:
Lestarými undir neðra þilfari er um 564 m3 og
því skipt með tveimur þverskipsþilum úr stáli í þrjár
lestar. Allar lestar eru búnar bæði fyrir geymslu a
ísfiski í kössum og bræðslufiski í lausu formi. Lestar
taka um 4500 70 1 fiskkassa. Lestar eru einang-
raðar með polyurethan og klæddar með stál-
plötum. Kæling er í öllum lestum með kælileiðslum
í lofti lesta. ís er fluttur í lestar með fæðilögn
og íssnigli, sem liggur í lofti lesta s.b.-megin, með
úttökum fyrir ísrennur til dreifingar.
Hverri lest er skipt með tveimur langskips-
þilum úr stáli, opin að hluta, í þrjú hólf, e'lt
miðhólf og tvö síðuhólf. Opum á langþilum er unnt
að loka með rennilúgum. Á þverþilum milli lesta
eru einnig op, sem unnt er að loka með boltuðum
stálhlerum. Lestarhólf eru búin lóðréttum austur-
stokkum.
Vinnuþilfar er unnt að nýta sem farmrými (um
220 m3) fyrir bræðslufisk og skipta því með
tveimur lausum langskipsþilum í sporum í tvö síðu-
hólf og eitt miðhólf. Umræddum hólfum er skipt
með lausum þverþilum í sporum.
Eitt lestarop (1993 x 2685 mm) er á fremstu
lest með lúgustokk sem nær upp að efra þilfan-
Fyrir miðlest er samsvarandi lestarop (1993 34
2685 mm) með stállúguloki á lömum búið fiskilúgu,
en fyrir öftustu lest er niðurgangslúga. Á neðra
þilfari eru auk þess boxalok fyrir miðlest og öftustu
lest. Á efra þilfari eru tvær losunarlúgur, sem konta
upp af lestaropum fyrir fremstu lest og miðlest,
með lúgulokum úr stáli búnum fiskilúgum. Um-
ræddar losunarlúgur eru fyrir framan yfirbygg"
ingu miðskips. í göngum á efra þilfari, til hliðar
við yfirbyggingu, er ein fiskilúga hvoru megm.
sem veitir aðgang að milliþilfarslest. Fyrir afferm-
ingu á kassafiski er losunarkrani.
Vindubúnaður, losunarbúnaður:
Vindu- og losunarbúnaður er vökvaknúmn