Ægir - 01.04.1985, Side 10
áætlun Þjóðhagsstofnunar
(„Skýringar við rekstraryfirlit
botnfiskveiða í mars 1985") er
gert ráðfyrir, að olíur, veiðarfæri,
ís og löndunarkostnaður fylgi
sóknarbreytingum að fullu, við-
hald að hálfu, en fastur kostnaður
haldist óbreyttur.
Árið 1983 var meðalúthald
minni togara 328 dagar, en 1984
voru þeir 296. Til þess að auka
sóknina aftur í það sem hún var
árið 1983 þyrfti því að fjölga
úthaldsdögum um 10,8%. Þar
sem afli yfir sumarmánuði ársins
1983 var vel yfir meðaltali ársins
áætlum við hinsvegar 15% sókn-
arauka til þess að ná sæmilegu
jafnvægi í hráefnisöfluninni.
Samkvæmt forsendum Þjóð-
hagsstofnunar má gera ráð fyrir
að 40% af kostnaði togaranna sé
sóknartengdur og því myndi
útgerðarkostnaður aukast um 6%
við 15% sóknarauka. Þetta þýðir
að íiskverð þyrfti að hækka um
6% til útgerðar. í fram-
legðarútreikningunum hér á
undan gerðum við ráð fyrir að
hráefnisverð væri 16,87 kr./kg.
Með afladreifingunni yrði því
nauðsynleg hækkun á hráefninu
16,87x6% = 1,01 kr./kg til að
útgerðin stæði ekki verr að vígi.
Það myndi þá auka hráefnis-
kostnað frystihússins um
101.000 kr. sem er þó ekki nema
brot af þeirri framlegðaraukningu
sem frystihúsið hefði náð.
Fiskverö
Þær þrjár leiðir sem notaðar
hafa verið á undanförnum árum
við stjórnun fiskveiðanna, þ.e.
aflamark (kvótakerfið), sóknar-
mark og tegundamark (skrap-
dagaveiðikerfið) hafa allar það
sameiginlegt að fækka útivistar-
dögum á sjó. Æskilegt er hins-
vegar vegna vinnslunnar að afl-
inn dreifist sem jafnast yfir árið.
Eitt er þó víst, að ef á að ná há-
marksafrakstri í sjávarútveginum
verður að gera sjómannastéttina
virka þátttakendur með breyttu
verðlagskerfi. Það er staðreynd
að mestur afrakstur vinnslu og
því þjóðhagslega mestur ávinn-
ingur, fæst með því að jafna
vinnslu og auka gæði með fersku
hráefni.
Möguleg lausn er fólgin í e.k.
„STJÖRNUFLOKKI", þ.e. bónus
fyrir stuttar veiðiferðir með hæfi-
legum afla og góðu mati. í þess
stað mætti fella niður kassa og
línuuppbætur, verðbætur á karfa
og svo framvegis.
LOKAORÐ ___________
Okkar skoðun er að með afla-
dreifingu yrði m.a. spornað við
hinu geysilega öryggisleysi í fisk-
vinnslunni sem hefur svifið yfir
vötnum á þessu ári. Þrátt fyrir að
seint verði hægt að losa fisk-
vinnsluna algjörlega undan
sveiflum í hráefnisöflun erum við
þess fullvissir að með markvissu
skipulagi og stjórnun er hægt að
minnka þær sveiflur verulega. Að
undanförnu virðist stjórnun fisk-
veiða hinsvegar hafa miðast ein-
göngu við neyðarráðstafanir
vegna fiskstofnanna.
Sjávarútvegur er víðast mjög
vel rekinn. Ef svo væri ekki, væru
erfiðleikar í íslenskum þjóðarbú-
skap miklu meiri en þeir þó eru.
Takmarkið er að gera góða vöru
betri og fá fyrir hana hæsta mögu-
lega verð. Það næst eingöngu
með fersku hráefni, skjótum
vinnubrögðum, réttri fram-
leiðsluskipulagningu og vönu
starfsfólki. Eins og staðan er í dag
náum við jafnvel ekki að koma
aflanum í viðunandi pakkningar
sökum manneklu og ofgnóttar
hráefnis á vissum tímabilum.
Verkföll og allar vinnustöðvanir
bitna hart á fiskvinnslunni, starfs-
fólki og fyrirtækjum. Til þess að
auka þjóðartekjur verðum við að
hafa frið á vinnumarkaðinum °f>
helsta leiðin til að ná þeim friðier
að auka verðmæti framleiðslui111
ar og bæta þar með stöðu f|S
vinnslunnar og þeirra sem vl
hana starfa.
Á fundi yfirnefndar um fiskver
28.12. '84 var rætt um að ha^
verð á þorski og ýsu breyti|e§
milli árstíða, þ.e. lægra í júb
ágúst. Hugmyndin var á Þe5?l1
leið.
„Auk framangreinds lágmaÁ-
verðs á þorski og ýsu sku1
fiskkaupendur greiða X% v' ^
bót mánuðina janúartil júm
september til desember.
framangreindu lágmarksver 1
á þorski og ýsu skulu fiskkaup
endur draga Y% mánuði11*1
júlí og ágúst."
Þetta náði ekki fram að ganfT1,
Hvort sem þessi leið er sú skásta
eða ekki, sýnir þetta þó að Þe'r
sem eiga þátt í skipulagnin^
sjávarútvegsins eru farnir 3
skynja vandamálið. Vonan
leiðir sú skynjun fljótlega til raun
hæfra viðbragða.
HEIMILDIR:
Fiskifélag Islands
Landssamband íslenskra útvegs-
manna.
Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna,
Jón Jóhannesson.
Þjóðhagsstofnun, Rósmundur
Guðnason.
Höfundar eru báðir fisktæknar,
Einar Garðar Hjaltason hjá
Hraðfrystihúsinu hf., Hnífsdal,
Hörður Geirsson hjá
Pólnum hf., ísafirði.
118-ÆCIR