Ægir - 01.02.1987, Qupperneq 28
84
ÆGIR
2/87
íslenskt varðskip lagði þegar af
stað frá Vestfjörðum og danskt
varðskip, „Vædderen", statt í Þórs-
höfn í Færeyjum einnig, en 15
tíma sigling var á slysstað.
Einnig var Nimrod flugvél frá
Skotlandi send í loftið kl. 2.25,
sömuleiðis P-3 vél frá Keflavík og
voru þær komnar á svæðið og til-
kynnti Nimrod vélin kl. 4.18, að
hún sæi einn fleka.
Um kl. 10 um morguninn var
kastað nýjum björgunarbáti úr
Nimrodþotunni en björgunar-
bátur skipbrotsmanna hafði
skemmst þegar hann var sjósett-
ur. Um kl. 13.50 hafði þyrlu af
danska varðskipinu „Vædderen"
tekist að bjarga 5 manns af 11
manna áhöfn „Suðurlands" en
þrír höfðu látist um borð í björg-
unarbátnum og aðrir þrír aldrei
komist í bátana.
Þeir sem fórust hétu:
Sigurður Sigurjónsson, skip-
stjóri, Breiðvangi 32, Hafnarfirði,
fæddur 7. ágúst 1924, kvæntur
og lætur eftir sig þrjú börn.
Hlöðver Einarsson, yfirvél-
stjóri, Flúðaseli 90, Reykjavík,
fæddur 11. nóvember 1945,
kvæntur og lætur eftir sig tvö
börn.
Sigurður L. Þorgeirsson, 2.
stýrimaður, Grenilundi 33, Akur-
eyri, fæddur 15. ágúst 1941,
kvæntur og lætur eftir sig fjögur
börn.
Hafsteinn Böðvarsson, mat-
sveinn, Langholtsvegi 178,
Reykjavík, fæddur23. júlí 1930.
Hann lætur eftir sig sambýlis-
konu, aldraða móður og sex
börn.
Sigurður Ölver Bragason, há-
seti, Fornósi 1, Sauðárkróki,
fæddur 7. janúar 1965, ókvæntur
og barnlaus.
Svanur Rögnvaldsson, báts-
maður, Ferjubakka 8, Reykjavík,
fæddur 14. desember 1929,
kvæntur og lætur eftir sig fimm
börn.
Sigurður Sigurjónsson Hlöðver Einarsson Sigurður L. Þorgeirsson
Hafsteinn Böðvarsson Sigurður Ölver Bragason Svanur Rögnvaldsson
M.S. Suðurland