Ægir - 01.08.1987, Blaðsíða 18
458
ÆGIR
8/8"
Mælingar á togálagi
Niðurstöður mælinga á togi
koma fram í töflu III. Niðurstöður
túlka meðaltal 13 toga dagana 7,-
9. mars s.l.
Tafla III:
Mælingar á togálagi
Toghraði 2.33 hn
Snúningshraði vélar 820sn/mín
Snúningshraði skrúfu 205sn/mín
Öxulafl 92 KW
Olíunotkun 33.6 l/klst
Rafmagnsálag 11.0KW
í sérhverju togi eru margir
aflestrar teknir og tekið meðaltal.
Meðalálag í einstökum togum var
breytilegt: toghraði frá 1.03 upp
í 3.30 hn; snúningshraði vélar á
bilinu 758-972 sn/mín; öxulafl á
bilinu 66-169 KW og olíunotkun
á bilinu 26.6-50.3 l/klst. Eins og
áður hefur komið fram knýr aðal-
vél m.a. jafnstraumsrafal og
vökvaþrýstidælu fyrir færi-
bandakerfi, og voru þessir afl-
gjafar stöðugt inni á veiðum. Hluti
olíunotkunar er því vegna þess-
ara þátta.
Á línuriti 1 eru mælipunktar
merktir inn, þ.e. öxulafl sem fall
af snúningshraða, en skrúfu-
skurður er fastur eins og fram
hefur komið. Á línuritinu er dreg-
inn reiknaður ferill fyrir öxulafl,
byggt á meðaltoghraða (2.33 hn).
Þeir mælipunktar sem hafa tog-
hraða undir meðaltoghraða (A)
falla flestir yfir meðalferli og öfugt
(mælipunktar H undir). Á línurit-
inu er sýndur annar ferill, þ.e.
meðalskrúfuspyrna, reiknuð út á
grundvelli meðalöxulafls og
meðaltoghraða.
Ef gengið er út frá mældu með-
altogálagi hefur að meðaltali
þurft um 2100 kg spyrnu til að
knýja skipið áfram með plóginn
aftan í.
Línurit 1. Skrúfuálag á togi.
Sjódæling á togi
í þessum veiðiskap er það sjó-
dælingin sem er orkufrerkur
þáttur. Á togi var keyrt með lítið
eitt breytilegum dælusnún-
ingshraða og við viðkomandi
snúningshraða var sjóflæði, sjó-
þrýstingur og olíunotkun niæld.
Meðalálag í sjódælingu er að
finna í töflu IV.
Tafla IV:
Sjódæling á togi
Fjöldi toga 26
Snúningshraði 1692sn/niín
Sjóflæði . 11100 l/mío
Sjóþrýstingur . 7.7 bar
Olíunotkun 60.0 l/klst
Á línuritum 2 og 3 er sam^a^
snúningshraða, sjóflæðis, d