Ægir - 01.06.1990, Blaðsíða 22
306
ÆGIR
6/90
kunnáttu, háttprýði og skyldu-
rækni við námið" eins og segir í
verðlaunaskjali sjóðsins:
Rúnar Garðarsson 1. stigi
Bjarni Franz Viggósson 2. stigi
Þorvarður Helgason 3. stigi.
Þeir höfðu allir 100% mætingu
og 10 í skólasóknareinkunn.
Fjöldi afmælisárganga voru við
skólaslitin, minntust skólans og
færðu honum gjafir.
Fjórir prófsveina úr farmanna-
deild frá árinu 1930 mættu við
skólaslitin og talaði Ragnar Þor-
steinsson rithöfundur fyrir þeirra
hönd.
Alþingishátíðarárið 1930 út-
skrifuðust 17 úr fiskimannadeild
og voru auk Ragnars mættir við
skólaslitin Þorsteinn Eyjólfsson,
Jón Stefánsson og Matthías
Jochumsson, en ásamt Axeli
Sveinbjörnssyni, sem var fjar-
staddur gáfu þessir gömlu sjó-
menn 75.000 kr. í Þyrlusjóð
Skólafélags Stýrimannaskólans.
Úr farmannadeild 1930 út-
skrifuðust 4 nemendur, þar á
meðal Páll Þorbjörnsson fyrrv.
skipstjóri og kaupmaður í Vest-
mannaeyjum, sem nú er látinn.
Hann var þá hæstur farmanna og
var það ánægjulegt að dóttursonar
Páls, Helgi Heiðar Georgsson lauk
nú einnig farmannaprófi með
hæstu einkunn.
Helgi Heiðar Georgsson var for-
maður Skólafélags Stýrimanna-
skólans og var sérstaklega virkur í
félagsmálum nemenda, hlaut
hann sérstakar þakkir skólameist-
ara fyrir það, en við skólaslitin
afhenti Helgi ávísun á Þyrlusjóð-
inn, upp á 1 milljón krónur úr
söfnun Skólafélagsins undir kjór-
orðinu „Þjóðarátak til þyrlu-
kaupa". Er sjóðurinn nú farinn að
nálgast 3 milljónir, en hann var
stofnaður að frumkvæði Stýn-
mannaskólanema vorið 1988.
Fyrir hönd 40 ára nemenda taj-
aði Ríkharður Jónsson og gáfu þeir
106.000 krónur til skólans.
Fyrir hönd 20 ára nemenda tal-
aði Sigurður Jónsson, en árið 1970
útskrifuðust 25 með fiskimanna-
prófi og 35 með farmannaprófi-
Páll Ægir Pétursson flutti kveðja
10 ára nemenda. Þessir tveir
afmælisárgangar ætla að styrkja
Sögusjóð Stýrimannaskólans, en
tilgangur hans er m.a. að minnast
100 ára afmælis Stýrimannaskól-
ans, sem verður á næsta ári.
Til máls tóku einnig frú Rann-
veig Tryggvadóttir og móðir Sigur'
Brautskráðir nemendur 7 990.