Ægir - 01.05.1991, Page 16
240
ÆGIR
5/9'
Sjófrysting
Því var spád í 5. tbl. Ægis í fyrra,
að vöxtur sjófrystingar mundi minnka
á komandi árum. Sú spá reynist að
vísu rétt, en engu að síður eykur
sjófrystingin hlut sinn í heildarafla.
Meðalaukning afla til sjófrystingar
á tímabilinu 1984-1988 var 57.5
% á ári. Aukning milli áranna 1988
og 1989 var hinsvegar 14.5% og á
síðasta ári jókst sjófrystingin ein-
ungis um 10.2 % frá fyrra ári. Er nú
svo komið að rúmlega 108 þúsund
tonn af botnfiski eru fryst á hafi úti
og tæplega níu þúsund tonn af
rækju. Alls nam afli í sjófrystingu
rúmlega 119 þúsund tonnum og
tekur sjófrystingin nú tii vinnslu
næstum eins mikið magn af botn-
fiski og fer til söltunar. Hinsvegar er
tegundaskipting afla til sjófrystingar
ólík tegundaskiptingu annarra
vinnslugreina. Þannig er hlutdeild
þorsks í sjófrystingu ólíkt minni en í
öðrum helstu greinum botnfisk-
vinnslunnar.
Landaður afli eftir mánuðum
Á meðfylgjandi línuriti sést
hvernig landaður afli annarra teg-
unda en loðnu og síldar skiptist eftir
mánuðum á árinu 1990. Aflinn barst
heldur jafnar á land eftir árstíðum en
árið áður. Vetrarvertíðin 1989 var
mjög góð eins og menn vafalaust
minnast. T.a.m. náði Sigurjón Ósk-
arsson og áhöfn hans á aflaskipinu
Þórunni Sveinsdóttur frá Vestmanna-
eyjum að setja nýtt aflamet á vetrar-
vertíð, þegar þeir náðu 1.932 tonna
afla. Eflaust hefur einnig áhrif til jafn-
ara framboðs afla til vinnslu, að fyrir-
fram var talið auðvelt fyrir flesta að
ná því aflamarki sem þeim var út-
hlutað á síðasta ári. Hvað heildar-
aflamagn varðar þá var febrúar afla-
sælasti mánuður ársins 1990, en þá
bárust á land rúmlega 337 þúsund
tonn af fiskl eðo ?2.4% afheildarafla
ársins. Loðnuaflinn í febrúar var yfir
282 þúsund tonn. Loðnuveiðar síð-
astliðið haustgengu lánsvegar afleit-
lega og var aflinn á haustvertíðinni
aðeins 83.655 tonn. t'f eingöngu er
miðað við botnfisk, þa kom mestur
afli á land í maímánuði um áttatíu
þúsund tonn.
Síðastliðið haust var talsvert
Sjófrysting
Þúsundir tonna
1982 1983 1984 1985 1986 1987 1988 1989 1990
I Botnfiskur
Rækja l:...I Annað
Skipting afla eftir mánuðum
(Afli annar en síld og loöna)
120
100
Þúsund tonn
Jan Feb Mar Apr Maí Jún Júl Agú Sep Okt Nóv Des
Mánuður
Heimlld: Flskliélao Islends
11989
11990
fjallað um slæm aflabrögð, en ekki
er að sjá að mikill samdráttur hafi
orðið í aflamagni á haustdögum
1990. Að vísu var afli óvenju litill í
september, u.þ.b. rúmlega 42 þús-
und tonn. Líklegt er, á kornat1
árum, að aflinn verði jafnari sn
mánuðum, en það ræðst þó af P
hvernig til muni takast með upP
byggingu fiskstofnanna.