Tímarit lögfræðinga - 01.01.1958, Blaðsíða 30
Formaður (varaformaður) kveður varamenn til stjórn-
arfunda, ef aðalmaður sækir ekki fund.
Félagsmanni er skylt að taka við stjórnarkjöri, en
stjórnarmaður getur skorazt undan endurkosningu.
12. gr.
Stjórn félagsins ræður málefnum félagsins með, þeim
takmörkunum, er lög þessi setja.
Hún tekur nánari ákvarðanir um starfsemi félagsins
og ber ábvrgð á fjárreiðum þess. Hún skuldbindur félag-
ið gagnvart öðrum aðiljum, og er undirskrift formanns
og gjaldkera nægileg til þess.
13. gr.
Stjórnarfundi skal boða með tryggilegum hætti og
með eins dags fyrirvara, ef unnt er.
Stjórnarfundur er ályktunarfær, ef þrir aðalstjórnar-
menn og einn varastjórnarmaður sækja fund hið fæsta.
Afl atkvæða ræður úrslitum á stjórnarfundujn. Nú eru
takvæði jöfn, og ræður þá atkvæði formanns (varafor-
manns) úrslitum.
Gerðir stjórnarinnar skulu bókfærðar.
V. KAFLI.
Ýmis ákvæði.
14. gr.
Nú kemur fram tillaga um það, að félaginu skuli slit-
ið, og skal liún þá sæta sömu meðferð sem tillaga til
lagabreytinga, sbr. 10. gr.
28
Tímarit lögfrœöinga