Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.10.1989, Síða 43

Tímarit lögfræðinga - 01.10.1989, Síða 43
manns til dómsmálaráðuneytisins og í því sambandi byggt á 3. mgr. 16. gr. bl. Hægt er að skjóta þangað úrskurði bæði að því er varðar skyldu til að greiða, fjárhæð og tímalengd. Sjaldnast mun þó vera ágreiningur um fjárhæðina. Samkvæmt þessu er unnt að fjalla um kröfu um menntunarmeðlag á tveimur stigum, þ.e. hjá valdsmanni og ráðuneyti. 4.2. Framlög samkvæmt 19. gr. bl. Samkvæmt 19. gr. bl. er heimilt „að úrskurða framfærsluskyldan (meðlagsskyldan) aðila til að inna af hendi sérstök framlög vegna út- gjalda við skírn barns, fermingu, vegna sjúkdóms eða greftrunar eða af öðru sérstöku tilefni.“ Hér verður ekki farið mörgum orðum um það hvað getur fallið hér undir. Þó má benda á að í greinargerð með bl. er sérstaklega nefndur til viðbótar kostnaður vegna tannviðgerða og skólaferðalaga.31 1 fram- kvæmd er algengast að krafa komi fram vegna kostnaðar við ferm- ingu og tannréttingar. Framkvæmdin er sú að krefjandi snýr sér til valdsmanns (í Reykja- vík yfirsakadómara). Samkvæmt 2. mgr. 19. gr. bl. verða framlögin því aðeins úrskurðuð, að krafa um þau sé höfð uppi innan þriggja mánaða frá því að svara varð til útgjalda, nema eðlileg ástæða hafi verið til að bíða með slíka kröfu. Ef t.d. um er að ræða kostnað vegna fermingar leggur krefjandi fram vottorð prests svo og reikninga sem sýna kostnað sem lagt hefur verið í. Reglan er sú að meðlagsskyldur aðili er úrskurðaður til að greiða helminginn af þeim kostnaði. Þess ber þó að geta að dómsmálaráðuneytið gefur árlega út leiðbeiningar um það hvað telst eðlileg viðmiðun í þessu sambandi.32 Ekki eru til neinar sambærilegar viðmiðunarfjárhæðir í öðrum tilfellum, t.d. þegar um tannviðgerðir og tannréttingar er að ræða. í þeim tilfellum eru meðlagsskyldir aðilar venjulega úrskurðaðir til að greiða samkvæmt framlögðum reikningum til helminga. Þess má geta að 19. gr. hefur ekki verið álitin eiga við um langvarandi eða varanleg veikindi, heldur eingöngu um tíma- bundin og sérstök veikindi sem hafa útgjaldaauka í för með sér. Þegar um varanleg eða langvarandi veikindi er að ræða hefur þótt 31 Alþingistíðindi A 1980, s. 355. 32 Fyrir árið 1989 eru upphæðirnar eftirfarandi: Vegna fermingar kr. 18.500—24.000, skírnar kr. 5.000—6.000 og vegna greftrunar kr. 18.500—27.000. 185

x

Tímarit lögfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.