Ægir

Árgangur

Ægir - 01.11.2000, Blaðsíða 10

Ægir - 01.11.2000, Blaðsíða 10
FRÉTTIR Sænskir eignast hlut í SH Hótshyrna ehf., sem að hluta er í eigu Róberts Guðfinnssonar, stjórnarfor- manns SH, hefur gert samning við Muirfietd Invest AB i Svíþjóð um htutabréfaskipti. Þannig eignast fyrir- tækið 17% htut í sænska fyrirtækinu í skiptum fyrir htutabréf í Sötumiðstöð hraðfrystihús- anna hf. Hótshyrna ehf. var fyrir við- skiptin fimmti stærsti eigandi SH. I tengslum við vióskiptin hefur Þor- móóur rammi-Sæberg ehf. styrkt stöðu sina í Hótshyrnu ehf. með kaupum á 43% htutafjár. Ný Gugga á flot snemma næsta árs Þess er ekki tangt að bíða að Guðbjörg ÍS verði á ný gerð út frá ísafirði. Reyndar er ekki um að ræða skuttogara hetdur nýjan bát sem nú er í smíðum hjá Knörr á Akranesi og verður hann kominn á ftot snemma á næsta ári. Eig- endur nýju Guggunnar eru þeir feðgar Asgeir Guðbjartsson og Guðbjartur Asgeirsson, sem fyrrum voru skipstjórar og eigendur frægra aftaskipa með þessu nafni. Ósey smíðar fyrir Tálknfirðing Skipasmiðastöðin Ósey og útgerðarfyri- tækið Tátknfiróingur hafa samið um smíði á nýju dragnótarskipi. Skipið verður afhent eftir rúmt ár og mun futtsmiðað kosta um 450 mittjónir króna. Skipió verður búió ftakavinnstu- tínu og er um 42 metrar að Lengd. Út- gerðin bauð smíðina út og átti stöð í Kína tægsta tilboð en þar á eftir kom Ósey. Útgerðin vatdi fremur istensku stöðina, þrátt fyrir umtatsverðan veró- mun. Grandi hf.: Viðsnúningur upp á 360 milljónir milli ára Grandi hefur birt níu mánaða uppgjör sem sýnir að hagnaður félagsins og dótturíyrirtækis þess, Faxamjöls hf., á fyrstu níu mánuðum ársins nam 45 milljónum króna. A sama tíma í fyrra nam hagnaður félagsins 406 milljónum króna. Umtalsverð breyting hefur orðið á rekstrinum frá því félagið skilaði sínu sex mánaða uppgjöri. Þá var fyrirtækið gert upp með 176 milljóna króna hagnaði og sést því að hratt saxast á hagnaðinn, haldi þróunin áfram. Rekstrartekjur Granda námu 2.859 milljónum króna á txmabilinu og rekstrargjöld 2.167 milljónum króna. Fjármagnsgjöld námu 369 milljónum króna en á sama tíma í fyrra voru fjármunatekjur að fjárhæð 32 milljónir króna. Gengistap félagsins nam 351 milljón króna fyrir tímabilið en x fyrra var 11 milljóna króna gengishagnaður. Það sem skýrir fyrst og fremst minni hagnað félagsins er veruleg veiking íslensku krónunnar en talið er að óbreytt gengi muni þó hafa jákvæð áhrif á útflutningstekjurnar þegar litið sé til lengri framtíðar. Ofan á óhagstæða gengisþróun undanfarinna mánaða hafi einnig lagst mikil hækkun olíuverðs, sem framkallað hafi verulega hækkun rekstrargjalda umfram það sem var í fyrra. Nýstofnað fiskeldisfyrirtæki, Sæsilfur ehf.: Stórfellt fiskeldi í Mjóafirði Fiskeldisfyrirtækið Sæsilfur ehf., sem að standa m.a. Síldarvinnslan hf., Samherji hf. Hraðfrystistöð Þórshafnar, Guð- mundur Valur Stefánsson og fleiri, hefur kynnt áform um stórfellt kvi'aeldi í Mjóafirði. Þegar eldisstöðin hefur náð fullri stærð er gert ráð fyrir að heildarhlutafé í Sæsilfri verði ekki undir 600 milljónum króna. Ársvelta félagsins, miðað við 8.000 tonna ársframleiðslu, gæti orðið um 1,7 milljarðar króna. Guðmundur Valur Stefánsson, fram- kvæmdastjóri Sæsilfurs, segir að þótt saga fiskeldis á Islandi hafi ekki verið glæsileg til þessa sé tvennt sem gefi tilefni til bjartsýni nú. "Þau laxeldis- áform sem nú eru uppi á Austfjörðum gefa vonir um að í náinni framtíð verði umtalsverð breyting í austfirsku atvinnu- lífi sem muni verða landshlutanum til góðs," segir Guðmundur Valur

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.