Ægir - 01.11.2000, Blaðsíða 50
FRÓÐLEIKUR OG SKEMMTUN
Limanda limanda
Sandkoli
Sandkoli er hár og þunnur beinfiskur. Augu hans eru
hlið hans og snúa þau upp er hann syndir. Hausinn er
kjaftur lítill með smáum hvössum tönnum. Bak- og raufarugg-
ar eru langir og ná aftur á stirtlu. Eyruggar eru nokkuð smáir en
sporður allstór. Hægri hliðin er dökk að lit og þar er hreystrið
hrjúft en á ljósu hliðinni er það slétt. Rákin er greinileg og beyg-
ist hún yfir eyruggum. Sandkolinn hefur þá náttúru að hann get-
ur breytt um lit eftir því hvernig botninn og umhverfi hans er.
Efri hliðin er ýmist svört eða gráleit, mógrá eða rauðbrún og oft
með rauðum eða gulleitum smáblettum. Neðri hliðin er hvít eða
ljósleit og stundum með dökkum blettum.
Heimkynni sandkola eru í Norðaustur-Atlantshafi. Hann er
við Island og Færeyjar, í Hvítahafi og meðfram strönd Noregs og
við Danmörku. Þá er hann í kringum Bretlandseyjar og suður til
Biskajaflóa. Hér við land er mest af sandkola í Faxaflóa, undan
Suðvesturlandi og við suðurströndina en fyrir norðan og austan
land er hinsvegar mjög lítið um hann.
Sandkolinn er botnfiskur sem heldur sig mest á sand- og leir-
botni, oftast á 20-40 metra dýpi. Oft heldur hann sig mjög
grunnt og nálægt landi og jafnvel í þaranum og verður stundum
eftir í fjörupollum þegar fjarar. Á veturna heldur hann frá
ströndinni en færir sig nær landi á vorin þegar hlýna fer. Fæða
sandkola er aðallega alls konar hryggleysingjar eins og skeldýr,
burstaormar, slöngustjörnur og krabbadýr en hanna étur einnig
sandsíli, marsíli og loðnu sem leita sér skjóls í holum á botni
sjávar en þar liggur sandkolinn fyrir bráð sinni.
Hrygning fer fram eftir miðjan apríl, allt í kringum landið, þó
seinna fyrir norðan og austan land. Sandkolinn hrygnir oftast á
20 - 40 metra dýpi og eru eggin mjög smá. Lirfurnar eru um 3
mm við klak og halda sig ofarlega í sjónum þar til þær ná 2-3
cm stærð en þá leita seiðin fæðu við botninn. Sandkoli getur orð-
ið að minnsta kosti 14 ára gamall og meðalstærð þeirra er 15-35
cm.
Sandkolinn er mest veiddur hér við land í dragnót, einkum í
Faxaflóa og við suðurströndina. Hefur aflinn á ári verið um 5000
tonn að undanförnu.
IKR0SSGÁTAN
VeiÁar- fœri For-fó&uf Ske.L KomasL Sukl(uvn ekki &OQÍ Op K&tjrib Drí-f ’O- hemjur Dftjkk Bok- slafnum Run- Urnar Sambi. Elska&L Heiii SlányiL Sláa
Gœslu- rr\aduv a íoruqaiu 2.
Sl'jrkja Toppur H. « > Komast Kuiki Manubur
þuit Kvakih \/ > V
'o6a- qotió 1. b. VejurÍM Drykkur ?. v
Innýftí Kynlaus v era SömcL v y j
To k Kalobar Sam- siaóir <?.
'OnoOnAÍ Dyrka ftont V v— * ► 3. ►
—• ! j bropa 5. Naqlanix 10.
50