Ægir - 01.11.2000, Page 40
SKIPASTÓLLIN N
Hinn þrjátíu og fimm ára gamli
Hamar fær nýjan svip
i
Hamar SH eftir breytingar. Mynd: Guðlaugur Albertsson
Fyrr í haust lauk Þorgeir &
Ellert á Akranesi viðamikl-
um endurbótum á tog-
bátnum Hamri SH 224 frá
Rifi. í heild sinni kostuðu
breytingarnar hátt á
fimmta tug milljóna króna
og samanstóðu bæði af
breytingum á skrokk og
endurnýjun búnaðar.
Skipstjóri á Hamri SH er Guðmundur
Matthíasson en útgerðarmaður er Kristnn
Friðþjófsson á Rifi.
Hamar SH hét áður Jökull ÞH og var
gerður út frá Raufarhöfn. Skipið er
tveggja þilfara, smíðað úr stáli árið 1964
í Bretlandi. Það var yfirbyggt árið 1979.
Fyrir breytingu í sumar var það 36,5
metrar að lengd.
Breytingarnar að þessu sinni fólust að-
allega í því að settur var nýr skutur á bát-
inn og honum slegið út að aftan. Þá var
skipt um stýri, skrúfu og gír en sá búnað-
ur kom úr loðnuskipinu Berki.
Komið var fyrir um borð nýjum víra-
mælingabúnaði frá Vaka-DNG og fjar-
skiptabúnaði frá Elcon. Skipið var málað
með Hempels málningu frá Slippfélag-
inu.
Hönnun breytinganna var í höndum
verkfræðistofunnar Fengs í Hafnarfirði og
að því kom einnig Þ&E á Akranesi.
Hamar hefur þegar haldið til veiða með
fiskitrolli.
Óskum eigendum og áhöfn til hamingju
með breytingarnar á Hamri SH-224.
Hamar SH-ZZfll
Hetetuundir.verktakar uoru '
Trésmiðjan'Kjölur og
Straumnes ehf., rafverktakar.
í
ÞORGEIR & ELLERT HF.
Bakkatúni 26 • 300 Akranesi • Sími 430 2000 • Fax 430 2001
Netfang: skaginn@skaginn.is • Veffang: www.skaginn.is
Slippfélagið
Málningarverksmidja
Dugguvogi 4 /104 Reykjavík
Slml: 588 8000 j Fax: 568 9255
-JIAMAB.SM2lL
Óskum útgerð og áhöfn til hamingju
með breytingarnar á skipinu.
Skipið ermálað með HEMPELS
skipamálningu frá Slippfélaginu
Málningarverksmiðju.