Ægir - 01.11.2000, Qupperneq 42
SKIPASTÓLLIN N
aði skrokkinn. Er þetta fyrsti
skrokkurinn smíðaður samkvæmt
þessari teikningu og eru góðar
vonir bundnar við þessa skrokk-
hönnun. Teiknistofa KGÞ Akur-
eyri sá um hönnun vinnsluþilfara,
Skipatækni um fyrirkomulag í
brú og Teiknistofan Stíll um efn-
isval í íbúðum.
Áður en smíði skipsins hófst var
líkan af skipskrokknum smíðað
og það prófað í tanki hjá Marin-
tech í Þrándheimi í Noregi. Við
prófunina kom í ljós að hönnun
skipsskrokksins hafði heppnast
vel og engra breytinga var þörf.
Skrokki hins nýja skips var
hleypt af stokkunum í Gdansk í
Póllandi þann 10. febrúar s.l. Eft-
ir ýmsan frágang í Póllandi var
skipið dregið til Kleven Verft í
Ulsteinsvik í Noregi þar sem
lokafrágangur fór fram. I prufu-
keyrslu sannreyndist hve skipið er
öflugt og náði það allt að 18,3 sjó-
mílna hraða og 14,5 sjómílna
hraða á hálfri olíugjöf.
Skipstjórar eru þeir Arngrímur
Brynjólfsson og Sturla Einarsson.
Yfirvélstjóri er Stefán Pétur
Hauksson. Framkvæmdastjóri út-
gerðarsviðs Samherja hf. er Krist-
ján Vilhelmsson.
Kostnaður við smíði skipsins
með búnaði er um 1,5 milljarða
króna.
Almenn lýsing
Vilhelm Þorsteinsson EA er smíð-
aður úr stáli samkvæmt kröfum
og undir eftirliti Det Noske Ver-
itas og Siglingastofnunar Islands,
samkvæmt flokkuninni +1 Al,
Fishing Vessel, Stern Trawler, S,
Ice C, E0. Skipið er nr. 310 frá
Kleven Verft AS í Ulsteinvík í
Noregi en skipsskrokkurinn var
smíðaður hjá Northen Shipyard í
Póllandi. Skipið er með tvö heil
þilför stafna á milli, perustefni,
þveran skut, nótaveiðiþilfar sem
nær aftur eftir skipinu, bakkaþil-
far og tveggja hæða yfirbyggingu
með brú miðskips, auk bátaþilfars
og brúarpalls.
Botn skipsins er að mestu tvö-
faldur að vélarúmi og bógskrúfu-
rými undanskildu. Bandabil
skrokks er 600 mm. Undir aðal-
þilfari er skipinu skipt með fimm
þverskipsþilum sem eru: stafn-
hylki, bógskrúfurými, kælivéla-
rými og krapaístankur, lest og
lestartankar, vélarúm og aftast eru
eldsneytistankar. I botni skipsins,
Sturla Einarsson, skipstjóri, við siglinga- og fiskileitartæki í brú.
undir lestum og hráefnistönkum,
eru eldsneytistankar. Fremst á að-
alþilfari eru stafnhylki, stiga-
gangur niður í bógskrúfu- og ís-
vélarými með eldsneytistönkum
út í sx'ðum, þá frystigeymsla,
vinnsluþilfar og aftast er þrfskipt
fiskimóttaka. Til hliðar við fiski-
móttökuna eru verkstæði og ljósa-
vélarými.
Togþilfarið er yfirbyggt að
mestu. Fremst er stafnhylki, þá
keðjukassi og stigahús fyrir véla-
rúm framskips. Vélarýmið er lok-
að með þverskipsþili. Aftan við
þilið á togþilfari eru fjórar grand-
aravindur, bobbingarennur, fiski-
móttaka og skutrenna. Fremsti
hluti togþilfars er útbúinn með
uppstillingu fyrir bræðslufisk.
Fremst stjórnborðsmegin á tog-
þilfari eru líkamsræktarklefi, sex
tveggja manna klefar, þvottahús
og stakkageymsla. Þar aftan við er
dælurými fyrir vökvadælur, véla-
reisn og klefi fyrir CO2 slökkvi-
kerfi. Bakborðsmegin er vinnslu-
rými, geymsla og aftast er nóta-
kassi.
Fremst á nótaveiðiþilfari eru
geymslur og vélarxim fyrir hafnar-
vél. Á þilfarinu fyrir framan brú
eru tvö snurpuspil, tveir þilfars-
kranar, fiskidæla og sjóskilja fyrir
lestar framskips. Stjórnborðsmeg-
in eru kraftblökkin, niðurlagn-
ingablökk, togvinda og sjóskilja
fyrir lestar afturskips. Bakborðs-
megin, aftan við brú, eru tvær
togvindur og miðskips eru tvær
netavindur. Fremst á bakkaþilfari
eru akkerisvindur og tveir and-
VIÐ ÓSKUM SAMHERJA HF.
OG ÁHÖFN TIL HAMINGJU
MEÐ GLÆSILEGT SKIP
SKAGINN HF.
Bakkatúni 26 • 300 Akranesi • Sími 430 2000 ■ Fax: 430 2001
Netfang: skaginn@skaginn.is • Veffang: www.skaginn.is