Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1941, Blaðsíða 14
12
Haralds Níelssonar fyrirlestur flutti próf. dr. Sigurður
Nordal 30. nóv. um trúarlíf séra Jóns Magnússonar.
Dr. phil. Þorkell Jóhannesson flutti 3 fyrirlestra: Upphaf
prentvérks ú íslandi, ullariðnaður til forna og rauðablástur
á íslandi.
Dr. theol. Eiríkur Albertsson flutti veturinn 1939—1940 og
1940—1941 flokk fyrirlestra um frumkristnina.
Ræðismaður Frakka, lierra II. Voillery, flutti 4 fyrirleslra
um franska málaralist frá 1800.
Sendisveitarráð C. A. Brun flutti 3 fyrirlestra um utanríkis-
málastefnu Dana 180k—1870.
Hallgrímur Helgason tónskáld flutti 4 fyrirlestra um tónlist.
Cand. mag. Þórhallur Þorgilsson flutti 3 fyrirlestra um
Spáin og spænskt þjóðlíf.
Rektorsfesti. Fvrir forgöngu Stúdentafélags Reykjavíkur
létu nokkur félög og menn í Revkjavík gera fagra gullfesti
og gáfu háskólanum. Er til þess ætlazt, að rektor háskólans
beri hana á herðum við liátíðleg' tækifæri. Festin var afhent
1. vetrardag 1941 (26. okt.) í kennarastofu háskólans, að við-
stöddum háskólakennurum og nokkrum gefendanna, rétt
áður en háskólahátiðin hófst. Próf. Guðbrandur Jónsson
hafði orð fyrir framkvæmdanefnd gefendanna og afhenti
rektor festina, en rektor þakkaði. Gefendur voru þessir: Dr.
jur. Eiuar Arnórsson hæstaréttardómari, dr. phil. Frank le
Sage de Fontenay sendiherra, próf. dr. phil. Guðjón Samú-
elsson húsameistari, herra Marteinn Meulenherg biskup,
Læknafélag Reykjavíkur, Málflutningsmannafélag íslands,
Prestafélag íslands og Verkfræðingafélag íslands.
Kvikmyndahús. Bæjarstjórn Reykjavíkur veitti háskólanum
leyfi til reksturs kvikmvndahúss, eftir heiðni háskólaráðs,
shr. Arhók 1939—1940, hls. 18. Kaus háskólaráð á fundi 20.
des. 1940 prófessorana Bjarna Benediktsson, Jón Hj. Sigurðs-
son og Niels Dungal til þess að hafa framkvæmdir í málinu.
í stað próf. Bjarna Benediktssonar starfaði cand. jur. Gunnar