Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1941, Blaðsíða 17
15
í norðurenda hússins og í 2 kennslustofum á miShæð; enn
fremnr fékk menntaskólinn til afnota liluta af kjallaran-
um undir norðurenda liússins.
Þá fór stjórn stúdentagarðsins fram á það, þar sem garð-
urinn liafði einnig verið tekinn hernámi, að starfrækt yrði
mötuneyti fvrir slúdenta í háskólanum. Yar síðan mötuneyt-
inu komið fyrir i 3 stofum í kjallara í suðurenda liússins,
og var það rekið þar frá nóvemberbyrjun.
Bvrjað var að flytja í hin nýju húsakvnni háskólans í
ágústlok 19-10, og því lokið í októberhyrjun.
Vegna flutningsins var ákveðið, að kennsla skyldi hefj-
ast 1. okt., en skrásetningarfrestur til 4. okt.
Umsjónarmaður háskólans var ráðinn Óskar Bjarnasen.
Erindisbréf umsjónarmanns og reglur um afnot hússins er
prentað á l)ls. 82—83.
Námsleyfi. Leyfi til skrásetningar var veitt stud. med.
John Eikaas, stúdent frá Bergen, og stud. mag. Niels Juel
Faber Arcje, stúdent frá Tórshavn.
Stúdentakór var settur á stofn, og veitti liáskólaráð úr Próf-
gjaldasjóði 600 lcr. styrk lil þess að greiða þóknun handa
söngstjóra kórsins.
Hátíðahöld 1. desember. Háskólaráðið gerði á fundi 22. nóv.
svofellda ályktun:
Með því að háskólaráðið telur það mjög óviðeigandi, að
haldnar séu gleðisamkomur hér á landi á fullveldisdaginn,
eins og nú er komið högum þjóðarinnar, heinir háskólaráðið
þeim tilmælum til stúdentaráðs, að fella niður dansleik þann,
er það liefur áformað að halda að kveldi hins 1. des. n. k.
Hljómleikar fyrir kennara og stúdenta. Þeir Árni Kristjáns-
son (flygill) og Björn Ólafsson (fiðla) liéldu 6 hljómleika í
hátíðasalnum fyrir kennara háskólans og stúdenta.