Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1941, Blaðsíða 76
74
hefur verið í Gamla Bíó. Að lokum var dansleikur að Hótel Borg, og
fór hann hið bezta fram.
Utvarpskvöldi háskólastúdenta gekkst ráðið fyrir síðasta vetrardag.
Þar voru flutt ávörp og erindi, söngur, liljóðfærasláttur og gamanþáttur.
Fjárhagur stúdentaráðsins má teljast sæmilegur. í sjóði við lok þessa
starfsárs voru kr. 5222.75. Á árinu aflaði stúdentaráðið sér nokkurra
muna, sem nauðsynlegir voru vegna starfsemi þess.
Auk þess, sem að framan er talið, hafði ráðið ýms mál með höndum,
sem ekki þykir ástæða til að geta nánar um.
Reykjavik, 30. okt. 1941.
Þorgeir Gestsson.
Skýrsla um íþróttaiðkanir stúdenta veturinn 1940—1941.
Fimleikaæfingar fóru fram alla daga vikunnar, nema laugardaga.
Kennsla liófst um 1. nóv. og stóð til aprílloka. Kennari var Benedikt
Jakobsson. 1 húsi Jóns Þorsteinssonar voru handknattleiksæfingar á
þriðjud. og föstud. kl. 10—11 e. h. og badminton á sunnud. kl. 10—1Í!
f. h. I miðbæjarbarnaskólanum var iðkuð leikfimi á mánud. og miðvikud.
kl. 10—11 e. h. Á mánud., miðvikud. og fimmtud. voru iðkaðir fimleikar
frá kl. 11—12 f. h. í iþróttahúsi í. R. við Túngötu. Stúdentar sóttu leik-
fimitíma illa, en handknattleikstímarnir voru sæmilega sóttir. Hand-
knattleikskeppni fór fram milli framhaldsskólanna í Reykjavík í april-
mánuði, og tók háskólinn þátt í henni og var næst-hlutskarpastur, en
menntaskólinn vann. Eftirtaldir stúdentar tóku þátt i liandknattleiks-
keppninni: Brandur Brynjólfsson, Björgvin Bjarnason, Bjarni Konráðs-
son, Ásgeir Magnússon, Eggert Thorarensen og Jón Bergmann. Að þessu
sinni tóku stúdentar ekki þátt í landsmóti í handknattleik vegna þess,
hve margir þeirra voru i kappliðum annarra félaga. Landsmótið hófst
27. marz, og fór það fram á sömu tímum og liandhnattleiksæfingar stú-
denta voru, svo að þær féllu niður frá þeim tíma, þar sem mótið var háð
i liúsi Jóns Þorsteinssonar. Reynt var tvívegis að heyja knattspyrnu-
keppni milli menntaskólans og háskólans, en menntaskólapiltar komu
hvorugt skiptið til leiks.
Sundæfingar voru hafðar 2 í viku, miðvikud. kl. 2—3 e. h. og laugard.
kl. 10—11 f. h. Kennsla liófst um 20. nóv. og stóð fram til 7. apríl. Sund-
kennarar sundhallarinnar önnuðust kennsluna. Frá 20. nóv. til 3. marz
var kennt bringusund, en þá fór fram boðsundskeppni í hringusundi
milli framhaldsskólanna i Reykjavik, sem lauk með sigri Iðnskólans,
en háskólinn var dæmdur úr leik vegna formgalla. Keppt var um nýjan
bikar, sem stúdentaráðið gaf. Keppendur frá háskólanum voru: Hannes