Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1941, Blaðsíða 7
o
Allt líf þjóðar vorrar liefur frá öndverðu verið barátta við
náttúruöfl, barátta við sjóinn og barátta við moldina. Þjóð
vor liefur á undanförnum árum unnið stórsigra í barátt-
unni við Ægi. Vér Islendingar erum langmesta fiskiþjóð í
lieimi, miðað við íbúatölu. Flestar framfarir síðustu áratuga
liafa orðið fyrir gull það, er sótt hefur verið í greipar Ægis,
og' undir forystu vísindalegra rannsókna mun lialdið áfram
á þessari braut. í baráttu við moldina hefur orðið minna
ágengt. Erlendur vísindamaður hefur nýlega sagt, að svo
virðist sem í þessari viðureign manns og moldar á Islandi,
liafi moldin, fram að þessum tíma, borið sigur af hólmi.
I landbúnaði stöndum vér enn langt að baki öðrum þjóðum
og ótal verðmæti í jörðu hafa enn ekki verið hagnýtt, þótt
nú rofi fyrir nýjum degi. Landið er að mestu ónumið og ný
landnámsöld er liafin. Til þessarar baráttu, að gera sér jörð-
ina undirgefna, að drottna yfir auðæfum sjávar, að sigrast
á andstöðu loftsins, eruð þér kvaddir, ungir stúdentar, er
ég í dag býð velkomna. Starfið er margt, og því er það ósk
háskólans, að liver og einn geti búið sig undir lífsstarf sitt
á því sviði, er liann finnur hæfileika sína mesta. Fjölbreytni
báskólanáms er jafn æskilegt og margbreyttar tegundir fæðu
til viðhalds líkamanum. A þessum tímum hins nýja land-
náms er meiri þörf á mönnum með hagnýtri þekkingu á öll-
um verklegum sviðum en á fræðigreinum þeim, sem stundað-
ar hafa verið áður, þótt þær séu einnig nauðsynlegar. Vér
fögnum því, að hafin hefur verið kennsla í verkfræði, og
híðum þess, að reynslan skeri úr um framtíð þessarar fræði-
greinar við liáskólann. Kennsla í viðskiptafræði mun hráð-
lega verða lögð undir háskólann. Er sú breyting eðlileg og
sjálfsögð, enda eindregin ósk allra stúdenta þeirra, er þessi
fræði lesa. Tungumálanám mun þroskast við háskólann á
næstu árum og er nú í fvrsta skipti veitt kennsla í suður-
landamálum, í ítölsku og spænsku. Eftir nokkur ár vonum
vér, að kennsla í náttúruvisindum verði tekin upp og gert er
ráð fyrir kennaradeild, og er þvi fvrirsjáanlegt, að þessi
stofnun mun enn taka miklum breytingum á næstu árum.