Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1941, Blaðsíða 42
40
II. í handlæknisfræði: Drep í fæti. Orsakir, einkenni og
meðferð.
III. 1 réttarlæknisfræði: Gerið grein fyrir þeiin áverkum á
líkum, sem helzt getur orðið vafi um, hvort sé úr lif-
anda lifi eða ekki, og hvernig unnt er að úrskurða, hvort
heldur sé.
Prófinu var lokið 23. maí.
Prófdómendur voru læknarnir Mattliías Einarsson og dr.
med. Halldór Hansen.
Lagadeildin.
I. Embættispróf í lögfræði.
í lok fvrra misseris luku 9 kandídatar embættisprófi i
lögfræði.
Skriflega prófið fór fram 7., 9., 10., 11. og 13. janúar.
Verkefni í skriflega prófinu voru þessi:
I. I 7. borgararétti: Hverjir eru skylduerfingjar og hver er
réttur þeirra?
II. í II. borgararétti: Lýsið reglum siglingalaganna um
stöðuumboð skipstjóra.
III. í refsirétti: Skýrið 63. gr. hegningarlaganna frá 1869.
IV. I stjórnlagafræði: Lýsið reglum stjórnarskrárinnar um
þingrof.
V. í réttarfari: Hverjar eru verkanir fjárnáms.
Munnlega prófið fór fram 22., 23., 24. og 25. janúar og
1. febrúar.
Prófdómendur voru hæstaréttardómararnir dr. Einar
Arnórsson, dr. Þórður Eyjólfsson og Gissur Bergsteinsson.
1 lok síðara kennslumisseris luku 5 stúdentar embættis-
prófi í lögfræði.
Skriflega prófið fór fram 2., 3., 5., 6. og 8. maí.
Verkefni í prófinu voru þessi:
I. í I. borgararétti: Skýrið 25. gr. erfðatilsk. frá 1850.