Árbók Háskóla Íslands

Volume

Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1941, Page 55

Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1941, Page 55
53 Æviágrip dr. med. Júlíusar Sigurjónssonar. Júlíus Sigurjónsson er fæddur 26. des. 1907 i Grenivík. Foreldrar: Sigurjón Jónsson liéraöslæknir og Sigríður Ólafsdóttir kona hans. Stúdent frá menntaskólanum i Reykjavík 1926. Embættispróf i læknis- fræði við Háskóla íslands vorið 1931. Diploma of Bacteriology við University of London 1932. Var erlendis frá því uin liaustið 1931 til ársloka 1933 (London, Berlín, Wien), með styrk frá Rockefeller Founda- tion í 2 ár. Aðstoðarlæknir í Rannsóknarstofu liáskólans 1934—1936. F’ór þá utan og var erlendis rúmlega eitt ár (Kaupmannahöfn og Ham- borg). Sigldi haustið 1938 með ferðastyrk frá Rockefellerstofnuninni til þess að kynnast ýmsum heilsufræðistofnunum. Aukakennari í lieil- brigðisfræði við Háskóla íslands frá því haustið 1937 og hefur veitt Malvælaeftirliti rikisins forstöðu frá sama tíma. Hefur nú með hönd- um manneldisrannsóknir á vegum manneldisráðs. Kvæntist 1934 Berg- ljótu Patursson frá Ivirkjuliæ í Færeyjum. X. SÖFN HÁSKÓLANS Háskólabókasafn. Bækur háskólans voru fluttar í hin nýju húsakynni síðara hluta ágústmánaðar og í september 1940; var því næst unnið að röðun bókanna og því lokið og safnið tekið til afnota 1. nóv. 1941. Við það tækifæri liélt rektor ræðu, og lýsti hann þar sögu safnsins og tilgangi (ræðan er prentuð í Morgun- blaðinu 2. nóv. 1940). Um notkun safnsins setti háskólaráðið reglur til bráðaliirgða, og eru þær prentaðar hér á hls. 81—82. Bækur safnsins eru um 640 m. eða 31000 bindi (að með- töldum sérprentunum); þar af er allstórt handbókasafn sett á lestrarsalinn (70 m., um 1900 bindi). Sumt af þessum bók- um hefur háskólinn eignazt að gjöf, og er þar fyrst og fremst að nefna þessar bókagjafir: rit guðfræðilegs efnis úr eigu sr. Friðriks Bergmanns og sr. Sofusar Thormodsæters (6150 bindi), málfræðirit úr eigu próf. Arwids Johansons i Man- chester og loks allt bókasafn próf. Finns Jónssonar (um 7500 bindi), — annað hefur verið keypt smám saman. Til að veita safninu forstöðu var ráðinn dr. Einar Ól.

x

Árbók Háskóla Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Háskóla Íslands
https://timarit.is/publication/588

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.