Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1941, Side 74
72
Reikning þennan og allar bækur happdrættisins og fylgiskjöl, svo
og sjóð þess, höfum við undirritaðir endurskoðendur farið nákvæm-
lega yfir og ekkert fundið athugavert.
Reykjavík, 4. april 1941.
Ásmundur Guðmundsson,
prófessor.
Þorsteinn Jónsson,
bankafulltrúi.
XV. ÝMISLEGT
Skýrsla um störf stúdentaráðsins 1940—’41.
Eftirtaldir fulltrúar áttu sæti i stúdentaráðinu í ár;
Ármann Snævarr, stud. jur., Benedikt Bjarkiind, stud. jur., Bergþór
Smári, stud. jur., Einar Ingimundarson, stud. jur., Gísli Ólafsson, stud.
med., Gunnar Gíslason, stud. theol., Ólafur S. Björnsson, stud. jur., Skúli
Thoroddsen, stud. med. og Þorgeir Gestsson, stud. med.
Stjórn ráðsins skipuðu:
Þorgeir Gestsson, formaður, Einar Ingimundarson, féhirðir, og Bene-
dikt Bjarklind, ritari.
Verður liér drepið á það helzta, sem stúdentaráðið hafði með höndum
á þessu starfsári. — Ber þá fyrst að nefna það mál, sem ráðið hefur mest
haft til meðferðar, bæði fyrr og síðar, en það er styrkjamálið. Það er
mál, sem verður allt af óleyst, þangað til tekst að fá styrkjaupphæðina
miðaða við þann fjölda stúdenta, sem nema við háskólann. Var kosin
nefnd til þess að athuga og gera tillögur til stúdentaráðsins um þessi
efni. I nefndinni tók sæti cand. juris Gunnar Thoroddsen fyrir tilmæli
ráðsins. Nefndin hefur enn ekki skilað áliti, cn þess mun skammt að
biða, að frá henni komi ítarleg greinargerð.
Til bráðabirgða beitti ráðið sér fyrir því, að fá dýrtiðaruppbót á alla
styrki til stúdenta, og tókst það svo giftusamlega, að ríkisstjórn féllst á
þá málaleitun að fullu.
Upplýsingaskrifstofan var starfrækt sem áður, undir stjórn Lúðvigs
Guðmundssonar skólastjóra. Þar sem starfssvið skrifstofunnar er nú
orðið svo yfirgripsmikið, — nær til allra námsmanna án tillits til þess,
hvort þeir eru stúdentar eða ekki, þótti ráðinu rétt að aðskilja fjárhag
hennar og ráðsins. Sá skilnaður fór fram um síðustu áramót.
Stúdentagarðurinn hefur enn sem fyr verið starfræktur sem brezkt
sjúkrahús. Þrátt fyrir gefinn ioforð sáu brezku hernaðaryfirvöldin sér
ekki fært að rýma Garð á þessu hausti. ítrekaðar tilraunir Garðstjórnar