Árbók Háskóla Íslands - 01.02.1950, Blaðsíða 114
112
stendur. Ýmis slík boð bárust stúdentaráði, svo og boð um þátttöku
í ýmsum hátíðahöldum og ráðstefnum stúdenta á Norðurlöndum,
en flestum varð að neita af framangreindum orsökum.
Laganemamir Ámi Björnsson og Ari Isberg fóru á mót norrænna
laganema í Helsingfors og nutu til þess styrks frá stúdentaráði.
Ármann Kristinsson tók þátt í ráðstefnu í Noregi um sumarhá-
skóla á Norðurlöndum og mætti þar sem fulltrúi stúdentaráðs.
Ingi R. Helgason mætti sem áheymarfulltrúi stúdentaráðs á þingi
alþjóðasambands stúdenta í Prag.
Af öðrum boðum, sem stúdentaráði bárust, er sérstaklega eftir-
tektarvert boð um þátttöku í vinnubúðum (work camps), sem lands-
samband brezkra stúdenta stendur fyrir. Var stúdentaráði boðið að
senda 26 stúdenta til dvalar í vinnubúðunum um eins mánaðar skeið.
Kjörin þar eru þau, að stúdentarnir vinna að ýmis konar landbún-
aðarvinnu og fá greitt kaup í samræmi við kauptaxta á staðnum,
en verða að borga fyrir fæði, viðhald á áhöldum og þjónustu. Auk
þess fá þeir svo ókeypis fyrirgreiðslu af hendi stúdentasambands-
ins. Virðist hér vera um að ræða tækifæri fyrir stúdenta til þess
að komast út fyrir pollinn og vinna um leið að nokkru eða öllu
leyti fyrir sér. Enginn stúdent gat þó tekið þessu boði.
IUS. Skömmu eftir áramót bám fulltrúar róttækra í stúdenta-
ráði fram tillögu um, að stúdentaráð æskti eftir upptöku í alþjóða-
samband stúdenta. Hafði Inga R. Helgasyni áður verið falið að at-
huga, hvort stúdentaráð væri þar skráð, en ekki var talið víst, að
svo væri. Kom í ljós við þá eftirgrennslan, að stúdentaráð var þar
ekki meðlimur.
Var rætt um þetta mál á tveim fundum og urðu um það all-
harðar umræður. Að lokum var samþykkt tillaga frá formanni, þar
sem gert var ráð fyrir, að málinu yrði frestað í bili og hafðar uppi
fyrirspumir um það, hver afstaða hinna stúdentaráðanna á Norður-
löndum væri til sambandsins. Svör við þeim fyrirspumum bámst
frá tveim löndum, Noregi og Svíþjóð. Sögðust Norðmenn aldrei
hafa verið í sambandinu og töldu, að það væri misnotað í pólitísk-
um tilgangi. Sögðust þeir álíta mjög misráðið, að stúdentaráð gerð-
ist aðili í sambandinu. Svipaðar undirtektir voru frá Svíþjóð.
Námskeið fyrir nýstúdenta. Stúdentaráð gekkst fyrir því nýmæli
á síðasta hausti að efna til námskeiðs fyrir nýstúdenta. Var nám-
skeiðinu ætlað hvort tveggja í senn að kynna háskólann sem slík-
an og að reyna að kynna hverja deild fyrir sig. í samræmi við
þetta fékk stúdentaráð þá Pétur Sigurðsson háskólaritara, Björn
Sigfússon háskólabókavörð og Jón Emils stud. jur. til þess að halda
almenna fyrirlestra um háskólann og háskólalífið, en prófessoramir