Árbók Háskóla Íslands - 01.02.1950, Blaðsíða 12
10
fessor í guðfræðisdeild í fjarveru próf. Magnúsar Jónssonar,
unz öðruvísi verður ákveðið.
Leyfi frá kennslu næsta kennsluár var veitt próf. dr. Birni
Guðfinnssyni og dósent dr. Jóni Jóhannessyni, enda baki það
háskólanum ekki aukin útgjöld.
Háskólaráðið samþykkti á fundi 25. nóv. 1949 svofellda
ályktun:
1. Háskólaráð telur mjög óheppilegt, að kennarar háskólans
séu langvistum frá kennslunni og störf þeirra rækt á með-
an af settum kennurum. Nú hafa tveir prófessorar, þeir
Magnús Jónsson í guðfræðisdeild og Gunnar Thoroddsen
í laga- og hagfræðisdeild, verið frá embættum sínum á
þriðja ár, og er háskólaráði ókunnugt um, hve lengi er
ætlazt til, að sú skipun skuli standa. Vill háskólaráð því
skora á báða þessa prófessora að segja til fyrir 1. marz
næstkomandi, hvort þeir hugsi til að hverfa aftur til há-
skólans eða ei. Ef svo skyldi fara, að þeir hugsi ekki til
afturkomu, er háskólanum nauðsynlegt að vita um þetta
fyrir áðurnefndan tíma, svo að undirbúningur geti hafizt
til að skipa nýja menn í embættin.
2. Háskólaráð telur, að gefnu tilefni, að hverjum háskóla-
kennara, er kvaddur yrði til annarra umfangsmikilla starfa,
beri að leita samþykkis háskólaráðs áður.
Á fundi háskólaráðs 24. marz 1950 var lagt fram bréf mennta-
málaráðuneytisins, þar sem skýrt er frá, að það endurnýi leyfi
próf. Magnúsar Jónssonar til fjarvistar frá kennslustarfi í há-
skólanum meðan hann gegnir núverandi starfi í þágu ríkis-
stjórnarinnar. í tilefni þessa vill háskólaráð taka fram, að það
telur eðlilegt, að leitað sé umsagnar þess, áður en kennurum
er veitt lausn frá kennsluskyldu eða slíkt leyfi er framlengt
um ófyrirsjáanlegan tíma.
Námskeið í uppeldis- og kennslufræðxun var fyrirhugað fyrra
kennslumisserið, en fórst fyrir, sökum þess að engir nemend-
ur gáfu sig fram.