Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1989, Blaðsíða 33
Læknadeild og fræðasviö hennar
31
stofhun, sem er ætlað að vera miðstöð heil-
brigðisvfsinda og menntunar fyrir heilbrigðis-
starfsfólk landsins.
Helstu viðfangsefni
1. Kennsla og vísindaleg þjálfun lífffæðinga,
læknanema og lækna, svo og menntun heil-
brigðisstarfsfólks og fræðslustarfsemi fyrir
almenning.
2. Ráðgjöf og umsagnir íyrir heilbrigðisstofn-
anir og stjómvöld.
3. Samskipti við erlenda aðila. Störf fyrir sam-
tök norrænna ónæmisfræðinga og alþjóða-
samtök ónæmisfræðinga, þátttaka í alþjóð-
legum fræðslu- og vísindaráðstefnum.
4. Rannsóknir á blóð- og vefjasýnum frá sjúkl-
ingum til að greina og meta truflanir í starf-
semi ónæmiskerfisins.
5. Þróun nýrra aðferða og endurbætur á eldri
aðferðum til að tryggja rannsóknaþjónust-
unni æskilega nýsköpun og hagkvæmni.
6. Bein klinfsk ráðgjöf og læknisþjónusta fyrir
sjúklinga með sjúkdóma í ónæmiskerfi.
7. Til þess að ofangreind starfsemi geti orðið
nægilega vönduð, markvís og örugg þurfa
vísindarannsóknir að vera veigamikill þátt-
ur í rekstri hennar.
í árslok 1988 störfuðu nítján manns á deild-
inni.
Þjónusturannsóknir
ónæmisfræöideildar 1984-1988
Árið 1988 bárust 6759 blóðsýni frá sjúkling-
iim og voru gerðar rúmlega 26 þúsund mismun-
andi rannsóknir á þessum sýnum.
Eins og eðlilegt er fyrir nýja sérgrein, hefur
umfang þjónustm'annsókna vaxið mjög mikið
síðan deildin hóf starfsemi árið 1984. Þannig
hefur fjöldi rannsókna nærri tvöfaldast síðan
1984 og þjónustueiningar vaxið um rúmlega
38% sfðan 1985.
Auk þjónusturannsókna annast læknar deild-
arinnar klimska þjónustu og margvfslega ráð-
gjöf vegna sjúklinga á öllum sjúkrahúsum
Reykjavíkursvæðisins. Komið hefur í ljós,
að þörf er á bakvaktaþjónustu sérfræðinga í
ónæmisfræði á landsvísu vegna sjúklinga með
truflanir í ónæmiskerfi, einkum bráðaofnæmi
af ýmsu tagi. Er þess vænst að slík þjónusta
heQist 1989.
Kennsla í ónæmisfræöi
Starfsfólk deildarinnar annast tilskilda
kennslu f ónæmisfræði fyrir læknanema, lyfja-
fræði lyfsala, líffræðiskor, meinatækninema og
hjúkrunarffæði við Háskólann á Akureyri.
Ennfremur hafa 7 meinatæknar og 2 lyfja-
fræðingar notið handleiðslu hjá starfsfólki
deildarinnar vegna lokaprófsverkefnis. Þá hafa
verið haldin fjögur helgamámskeið f ónæm-
isfræði í samvinnu við Endurmenntunarstofh-
un Háskólans fyrir heilbrigðisstarfsfólk og líf-
fræðinga. Yfir 200 manns hafa sótt þessi nám-
skeið, og er fyrirhugað að efna til fleiri.
Helstu vísindaverkefni
Helstu vísindaverkefni Rannsóknastofu f
ónæmisfræði varða sórarannsóknir, glútein-
ofnæmi, forvamir gegn ofnæmi, meingerð
sjálfsofnæmissjúkdóma og ónæmisbilanir.
Varðandi lýsingu á þessum rannsóknaverkefn-
um vfsast til ritsins Rannsóknir við Háskóla
íslands svo og til ritskráa Arbókar Háskóla
íslands, en fyrst og fremst til ritsins Ónœmis-
frœðistofnun Landspítalans og Háskólans. Árs-
skýrsla 1988 og greinargerð í tilefni 5 ára af-
mœlis, en sú grein sem hér birtist er að stofni
til útdráttur úr því riti.
Forstöðumaður Rannsóknastofu í ónæmis-
fræði er Helgi Valdimarsson prófessor.
GAJ
Rannsóknastofa í líffærafræði
Rannsóknastofa í líffærafræði sinnir vísinda- og sjúkra. Starfsmenn rannsóknastofunnar ann-
legum rannsóknum í líffærafræði heilbrigðra astkennsluffræðigreininniviðHáskólaíslands