Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1989, Blaðsíða 153
Háskólabókasafn
151
artímann, en kl. 9-14 á sumrin. Bókavörður
var á staðnum hálfan daginn á vetmna, en
annars annaðist starfsmaður Eldfjallastöðv-
ar gæsluna.
Lag Lagabókasafn í Lögbergi. Safhið var yf-
ir vetrartímann opið virka daga kl. 10-12
og 13-16. Bókavörður var á staðnum um
helming þessa tíma, en að öðru leyti önnuð-
ust laganemar gæslu.
Les Handbóka- og lestrarsalur á 2. hæð (há-
tíðasalur). Salurinn var tekinn til afnota sem
safhhúsnæði í október 1986. Um fimmtíu
lessæti eru í salnum. Efniskostur: hand-
bækur, bókfiræðirit, námsritgerðir og rit til
skammtímaláns. Aðgangur var veittur að
bókakosti og þjónustu á sama tíma og f aðal-
afgreiðslu safnsins, en að lessætum alla daga
kl. 8-22.
LL LyfjqfrœÖi lyfsala í íþróttahúsi Háskólans
(efri hæð).
Nátt Lesstofa l Uffrœði, Grensásvegi 12.
Norsk Norska lektoratið í Norræna húsinu.
RH Bókasqfn Raunvísindastofnunar Hóskól-
ans.
RL Rannsóknastofa i lyfjqfrœði á 1. hæð og
í kjallara Aðalbyggingar Háskólans. Rann-
sóknastofan fluttist í desember 1988 í nýinn-
réttað húsnæði að Ármúla 30. Þar er bóka-
herbergi með hillurými sem nemur um átta-
tíu lengdarmetrum.
Sjúk Námsbraut í sjúkraþjálfun, Vitastíg 8.
Sænsk Sœnska lektoratið í Norræna húsinu.
VR Bókasafn verkfrœðideildar og raunvís-
indadeildar, Hjarðarhaga. Bókavörður var
á staðnum kl. 13-16 alla virka daga.
í safndeildum Háskólabókasafhs, þ.e. utan
aðalsafns, eru við árslok 1988 rúmlega 130 þús.
bindi (þar af um 60 þús. í geymslusafni f Kópa-
v°gi), og er það um helmingur alls ritaforða
Háskólans.
11. Fundir, námskeiö, nefndarstörf,
kynnisferöir
Um þennan þátt starfseminnar vísast til árs-
skýrslna safhsins. Þar er greint frá þátttöku
starfsfólks í námskeiðum, fundum og nefnd-
arstörfum af ýmsu tagi. Hér verður einungis
greint frá hinu helsta, einkum að þvf er varðar
kynnisferðir erlendis og þátttöku f fjölþjóðlegu
samstarfi.
Barbara B. Nelson sótti í nóvember 1988
fund um millisafnalán í London og heimsótti
f leiðinni hið mikla lánasafn, British Library
Document Supply Centre í Boston Spa, York-
shire.
Einar Sigurðsson var allt tímabilið formað-
ur Samstarfsnefndar um upplýsingamál, sem
er sjö manna nefnd skipuð af menntamálaráðu-
neyti. Hann var einnig annar af tveimur full-
trúum íslands í stjóm NORDINFO (Nordiska
samarbetsorganet för vetenskaplig informa-
tion) og sótti samtals fimm stjómarfundi af sex
alls, sem haldnir vom á þessu þriggja ára tíma-
bili (1986-88). Hann sótti ráðstefnu og sýn-
ingu í Vínarborg f október 1987 um nýja tækni
við varðveislu gagna og miðlun upplýsinga (In-
formatics 87). í júní 1988 tók hann þátt í nokk-
urra daga ferð um Finnland með hópi arkitekta
og bókavarða. Ferðin var skipulögð af þeirri
deild alþjóðasambands bókavarða, sem fjallar
um bókasafnsbyggingar.
Guðrún Karlsdóttir sótti fund um almenn-
ingsaðgang að tölvuvæddum skrám bókasafna,
sem haldinn varí Stokkhólmi f nóvember 1986.
Hún tók þátt f ferð til London og Bristol í júlí
1987, sem farin var til að athuga tölvukerfið
Libertas.
Halldóra Þorsteinsdóttir sótti 23. ársþing
IFLA (Alþjóðasambands bókavarða) í Brigh-
ton í Englandi í ágúst 1987, og í september
sama ár dvaldist hún um þriggja vikna skeið f
Montpellier í Frakklandi og kynnti sér rekstur
bókasafna háskólans þar.
Sigríður Lára Guðmundsdóttir sótti í ágúst
1987 námsstefnu um notkun tölva í bókasöfh-
um á Norðurlöndum, sem haldin var í Osló.
Þórir Ragnarsson sótti í aprfl 1987 fund sem
haldinn var í Kaupmannahöfn um samræmingu
og söfnun tölulegra upplýsinga um rannsóknar-
bókasöfn á Norðurlöndum. Hann tók þátt f ferð
þeirri, sem getið er um hér að ofan, til að athuga
breska tölvukerfið Libertas og hann flutti erindi
á fyrmefndri námsstefnu í Osló í ágúst 1987 um