Árbók Háskóla Íslands - 31.12.2003, Page 122
bærilegt próf getur þó veitt aðgang að deildinni og er þá m.a. miðað við að nem-
endur hafi lokið ekki færri en 21 einingu í stærðfræði auk 30 eininga í raungrein-
um, þar af 6 eininga í eðlisfræði. 6 í efnafræði og 6 í líffræði. Til inngöngu í landa-
fræði og ferðamálafræði nægir stúdentspróf af bóknámsbraut.
Samkvæmt tölum um fjölda nemenda í deildinni í upphafi haustmisseris voru
þeir alts 927. Á sama tíma árið 2002 voru nemendur deildarinnar 847.
Fjöldi erlendra stúdenta við deildina fór vaxandi. Allmargir nemendur sóttu heils-
árs námsbraut í jarðvísindum á ensku fyrir erlenda stúdenta. alls 11 námskeið í
jarðfræði (5). landafræði (3) og jarðeðlisfræði (2). auk eins yfirlitsnámskeiðs sem
fellur undir allar greinarnar þrjár. Þetta nám miðast við annað ár í háskóla.
Rannsóknir
Um rannsóknir í deitdinni er fjallað í kafta um Raunvísindastofnun Háskólans og
Líffræðistofnun Háskólans í Árbókinni.
Húsnæðismál
Ýmis vandamál steðja að hvað varðar húsnæði deitdarinnar og stofnana hennar.
Skrifstofur kennara eru víða þröngar og itta búnar. Rannsóknarrými er mun þrengra
en gerist við erienda rannsóknarháskóla og lítið sem ekkert rými fyrir aðstoðar-
menn og framhaldsnema. Við ráðningu nýrra kennara koma undantekningarlaust
upp vandamál er varða húsnæði og tækjabúnað. Aðstöðuteysi hamtar þátttöku
kennara og sérfræðinga deitdarinnar í erlendum samstarfsverkefnum. svo sem
Evrópuverkefnum.
Lausnir á húsnæðismálum þarf að nálgast í nánu samráði við stofnanir deitdar-
innar. Líffræðistofnun er alfarið í húsnæði Háskólans en Raunvísindastofnun á sitt
eigið húsnæði að Dunhaga 3 ásamt htuta Tæknigarðs. Líta verður á húsnæðið í
einu samhengi. Starfsemi þessara stofnana og deitdarinnar er til húsa í mörgum
byggingum, allt frá Haga við Hofsvatlagötu í vestri til Grensásvegar 11 og 12 í austri,
auk þess sem nokkrir kennarar eru með starfsaðstöðu á rannsóknastofnunum
atvinnuveganna og á Landspítala - háskótasjúkrahúsi. Með tilkomu Náttúru-
fræðahúss sem tekið var í notkun í árslok 2003 batnar verulega aðstaða þeirra
greina er þangað flytjast, líffræði, jarðeðlisfræði og jarð- og landfræði auk Nor-
rænu eldfjallastöðvarinnar, og jafnframt er mest af þeirri deildarinnar sem var ut-
an háskólalóðar komið á háskóiasvæðið. Vandamát greina sem eru vestan Suð-
urgötu munu ekki leysast að fullu fyrr en byggt verður við VR-byggingarnar þar
sem nú er grunnur að húsi. Ljóst er að teysa þarf hið fyrsta húsnæðisvanda mat-
vælafræðiskorar.
Kynningarstarf
Kynning á starfi deildarinnar fer fram á vegum skora og hafa þær flestar unnið að
útgáfu kynningarefnis í formi bæklinga. Þá hefur verið farið í heimsóknir í fram-
haldsskóla, auk þess sem deitdin hefur verið kynnt á reglulegum námskynning-
um Háskólans. Áfram var haldið starfi raunvísindadeildar Háskóta ístands með
Fræðslumiðstöð Reykjavíkur og landssamtökunum Heimiti og skóti um tilrauna-
verkefni sem felst viðfangsefnum á sviði raunvísinda fyrir bráðger börn á miðstigi
grunnskóla.
Þá hafa fastir kennarar deildarinnar og sérfræðingar á Raunvísindastofnun ásamt
meistara- og doktorsnemum staðið fyrir landskeppnum í stærðfræði. eðtisfræði
og efnafræði og þjálfun liðs íslands til að keppa á Ólympíuleikum framhalds-
skólanema í þessum sömu greinum.
Viðurkenningar
Á háskólahátíð 25. október var Helga Björnssyni vísindamanni í jarðeðlisfræði
veitt viðurkenning fyrir lofsverðan árangur í rannsóknum.
Heiðursdoktor
Ingrid U. Olsson, prófessor emerítus, í eðtisfræði frá Uppsataháskóla í Svíþjóð var
kjörin heiðursdoktor frá raunvísindadeild Háskóla íslands og veitti heiðursdokt-
orsnafnbótinni viðtöku á háskólahátíð 25. október. Rannsóknasvið hennar er ald-
ursgreiningar með geislakolsaðferð (C14-kolefnisatdursgreiningar).
118