Stúdentablaðið - 01.04.2002, Page 7
stúdentablaðið 7
THINGS NOT-, AND CONCERNING THE
NATO-MEETING, YOU WOULD NEVER
HAVE LEARNED (OTHERWISE).
It has been trvggvih@hi.iss intent with his writings in the Studentabladid to enlighten and
inform foreign students of the HÍ. Sharing his profound understanding and his dense
comprehension of lcelandic society he has always been honest and frank.
The truthfulness continues in this last column when he talks aboutthe upcoming
NATO-meeting of ministers.
A NATO-meeting (NATÓ fundur) will be held in the Háskólabíó on the
13th — 16th of May. The bíó is only a front, because the true meeting
will be held in a place called the Bændahöllin (the Peasants palace).
Some lcelanders don't particulariy care for a NATO-meeting taking
place in down-town Reykjavik. This is because of all the anti-
globalization-sweeds that are coming to disregard MacDonald's.
To prevent any arresting embarrassments during the NATO-meeting,
lcelandic policemen are now speaking excellent Swedish.
MacDonald's is an institution very important to the average lcelander.
This is because of the stjörnumáltíö.
Because the lcelandic police are under-paid, educated, manned, and
trained, they are recruiting potential batooners (so called
summercops). For further information contact nemendaskrá.
It has been decided by the chief of police, in order to control the
NATO-protesting- crowds, that cannabis will be given away at all gas-
stations. This decision was made by advise from the head of the
Psychology department at HÍ.
Iceland has a fully potent surveillance- and intelligence service
controlled by the minister of education. Its main purpose is to engage
in industrial espionage and the shadowing of foreign students. For
further information contact nemendaskrá.
Due to a likelihood of terrorist attacks during the NATO-meeting, US-
army specialists have studied some variations of possible hostage
situations in the Þjóðarbókhlaðan (Book barn). Thus making it the
safest library in Reykjavik, during the NATO-meeting.
ÞRÍNÆTTUR GESTUR ÞYKIR VERSTUR
agana 13.-15.maí veröur umhverfi Háskólans fyrir
töluverðri röskun vegna gestakomu. Hinir erlendu
gestir, sem sitja munu ekki færri en fimm fundi og
ráðstefnur á vegum NATO, eru svo fyrirferöamiklir að í
tæpa viku munu stúdentar vestan Suðurgötu þurfa að
rýma drjúgan hluta vinnuaðstöðu sinnar, s.s. tölvuver.
Vissulega mun þetta hafa í för með sér óhagræöi fyrir
margan stúdentinn sem verður á seinasta snúningi með
verkefnaskil, enda búinn að vera hyskinn og latur yfir vet-
urinn að vanda.
hað væri samt ekki tiltökumál að ganga úr
rúmi fj'rir góðum gestum. En eru liér góðir gest-
ir á ferð? Ekki velkjast utanríkisráðherra og tleiri
íslenskir stjórnmálamenn í vatá um það. Fyrir
þeim er enn ein tröllaukin ríkisframkvæmdin,
þjóðarhag til heilla - Kárahnjúkavirkjun terða-
þjónustunnar sem korna mun íslandi á kortið
þegar almenningur setur okkur í samhengi við
stórmenni á borð við Colin Powell, Jack Straw
og George Robertson. Þeir telja því ekki tiltöku-
mál að verja meira en 300 milljónum, þar af
timmtíu í ætingar og tækjakaup lögreglunnar til
að berja á hryðjuverkamönnum, því af einhverj-
um ástæðum er talið að þessi heimsókn komi ís-
landi einnig á kortið meðal slíkra manna.
Menn sem kostar 300 milljónir að bjóða til
landsins, geta þeir verið annað en aufúsugestir?
Myndu íslenskir ráðamenn eyða fé skattborgara í
annað? Hvers vegna efast einhverjir um gildi
hinna erlendu tyrirmenna?
Gæti það verið vegna þess að Colin Powell,
einn þeirra sem hingað kemur, er túlltrúi ríkis-
stjórnar sem verið hefúr stoð og stytta ísraels-
stjórnar í ólöglegu hernámi hennar í Palestínu
og stöðugum brotum á alþjóðalögum? I'essi
stjórn stendur fyrir reglulegum loftárásum á írak
og viðheldur viðskiptabanni sem eftirlitsmenn
Sameinuðu þjóðanna telja að hafi deytt mörg
hundruð þúsund börn. Þessi stjórn heftir í gegn-
um tíðina ekki veigrað fyrir sér að steypa lýðræð-
islega kjörnum ríkisstjórnum og þjóðhöfðingj-
um af stóli og hún er enn við sama heygarðs-
hornið eins og sjá má af því sem reynt var í
Venesúela á dögunum. Og þessi stjórn ber
ábyrgð á meira mannfalli óbreyttra borgara á síð-
asta ári en allir heimsins hryðjuverkamenn. Ein-
staklingurinn Colin Powell er verðugur fúlltrúi
þessarar stjórnar, enda gat hann sér gott orð á
dögum Víetnamstríðsins þegar hann tók að sér
persónulega að breiða yfir fjöldamorð banda-
ríska hersins í My Lai.
Gæti það verið vegna þess að Silvio
Berlusconi, sem hingað kemur í boði Halldórs
Ásgrímssonar og íslenska ríkisins, er maður sem
opinskátt hefiir lýst þeirri skoðun sinni að ein-
ungis kristnar þjóðir geti talist siðmenntaðar?
Þessi ummæli komu reyndar ftá manni sem eink-
um byggir stjórnmálaþátttöku sína á því að hún
veitir honum tækifæri til að hindra að lögmætir
aðilar fái að rannsaka glæpastarfsemi hans.
Gæti það verið vegna þess að ty'rkneski utan-
ríkisráðherrann, Ismail Cem, er fulltrúi ríkis-
stjórnar sem hefúr myrt um 35.000 Kúrda í
„baráttu gegn hryðjuverkum“ sem hófst löngu
áður en NATO ákvað að slík barátta ætti að vera
í öndvegi í framtíðarstarfsemi bandalagsins?
Gæti það verið vegna þess að á fúndinum sem
haldinn verður á lóðum Háskóla Islands, stend-
ur til að hampa sérstaklega Rússum fyrir þeirra
innlegg í „baráttuna gegn hryðjuverkum“? Eins
og annars staðar sem sú barátta fer fram, eru
fórnarlömbin óbreyttir borgarar. I Téténíu hafá
Rússar hafnað öllu samstarfi við mannréttinda-
fúlltrúa Sameinuðu þjóðanna, óhindrað stráfellt
þúsundir af saklausu fólki og lagt samfélag
Téténa í rúst. íslenski utanríkisráðherrann fitgn-
ar sérstaklega auknu samstarfi við Rússa, ekki síst
í „baráttunni við hryðjuverk“. Eru allir jafn
reiðubúnir til að fagna slíku samstarfi?
Eða gæti það jafnvel verið að sá hópur sem hér
er að hittast, sé allur af sarna toga og þeir sem
nefndir hafa verið? Sum Evrópuríki innan NATO
hafna otbeldisstefnu ísraelsmanna gegn Palest-
ínumönnum og stuðningi Bandaríkjastjórnar við
ísrael í því máli. En þegar bandalagið sem slíkt
kemur saman, þá hetúr ekkert ríki þar staðið
gegn því að það heýi árásarstríð sem ft rst og
fremst bitnar á óbreyttum borgurum, eins og
gerðist í Júgóslavíu á vordögum 1999. Ekkert
NATO-ríki er reiðubúið að láta reyna á ábyrgð
sína á þeim aðgerðum fyrir alþjóðlegum dóm-
stóli. NATO-ríkin voru öll sem eitt reiðubttin að
veita Bandaríkjastjórn frjálsar hendur gagnvart
borgurum Afghanistans í stað þess að láta reyna
á lögmætar og alþjóðlega viðurkenndar leiðir,
þar sem tekið hefði verið tillit til sáttmála um
vernd almennra borgara á stríðstímum.
I þessu bandalagi, sem eitt sinn skilgreindi sig
sem varnarbandalag, eru öll þau ríki sem til
skantms tíma stóðu fyrir nýlendukúgun í þriðja
heiminum. Ekki verður séð að viðhorf þeirra til
þróunarlandanna hafi tekið ntiklum stakkaskipt-
um. Allir helstu vopnasalar heimsins eiga skjól
sitt í NATO-ríkjum, eða þeim „bandalagsríkj-
um“ sem nú stendur til að heiðra og auka sam-
starfið við. Unt hvað skvldi það aukna samstarf
eiga að snúast?
Og það sem er jafnvel sorglegast í fari þessa
bandalags, sem einhverjir eru svo hótfyndnir að
skilgreina sem „ffiðarbandalag", er að bandalag-
ið áskilur sér rétt til að beita kjarnorkuvopnum
að fyrra bragði og helstu kjarnorkuveldi innan
bandalagsins ern nú að þróa með sér „nýja hugs-
un“ urn þessi vopn. I henni felst einkum að þau
eigi að nota í hernaði gagnvart ríkjum sem ekki
eiga kjarnorkuvopn og þröskuldurinn á notkun
þeirra verði lækkaður enn frekar. Er það þetta
sem Halldór Ásgrímsson og télagar ætla að ræða
við Colin Powell og Jack Straw nú í maí? Er það
þess vegna sem tölvunördar þurfa að rýma af-
drep sín og bera út tölvur sínar í miðjurn próf-
um? Er það þess vegna sem íslenskur almenning-
ur þarf að reiða fram hundruðir milljóna af sam-
eiginlegu ráðstöfttnarté þjóðarinnar?
Gæti það verið þess vegna að einhverjir gerast
svo ósvífnir að andæfá þessu ftmdarhaldi? Halda
því jafnvel fram að skattpeningum almennings
eigi að evða í eitthvað annað? Að fúndir sem
haldnir eru á íslandi eigi að snúast um eitthvað
annað en það að viðhalda þessu bandalagi og
þeirri starfsemi sem það stendur fyrir? Og er
jafnvel sama þótt það sé ekki „nútímalegt“ að
finnast hvorki sniðugt né töff það sem gestir
þessir taka sér fyrir hendur?
stefán pálsson, formaður samtaka
herstöðvaandstæðinga