Dýraverndarinn - 15.07.1917, Blaðsíða 13
DÝRAVERNDARINN
61
Þar sem eg er alinn upp í einni þeirri sveit landsins, sem
hrossaræktin er mikil, og þau látin lifa að meira eSa minna
leyti á útigangi, hef eg oft séS þeim líöa afarilla aö vetrinum
1 slæmu tíöarfari.
Eg játa þaö, aö eg hef alveg eins látiö mín hross lifa á
útigangi eins og sumir aörir, eklci fyrir þaö aö eg hafi ekki
haft hús yfir þau og oft fóöur, heldur fyrir einhvern gamlan
ólukkans vana. Þaö er eins og hver læri af öörum. Ungling-
arnir sjá gömlu bændurna láta hrossin sín bjarga sér sjálf úti
meöan hægt er. Unglingarnir hugsa sem svo: Ekki mundu
rosknir og reyndir bændur láta hrossin ganga svo, ef þeir
sæju sér engan hag af því.
Þetta er rótgróinn gamall vani, sem ilt er að fást viö, en er
full þörf að laga aö ýmsu leyti, því margir hugsa of litiö um
útigönguhrossin, ekki síst þegar ill veður eru.
Þó er sárast aö vita hrossin standa úti á skjóllausu haglendi
i grimmum frosthríðum, ef til vill sólarhring eftir sólarhring.
Eg er alveg hissa á þeim hrossaeigendum, sem láta hrossin
sín ganga vetur eftir vetur á slíku haglendi, aö þeir skuli ekki
byggja skjólgarða. Það er þó ekki kostnaðarsamt, eöa ætli
hrossunum líöi ekki betur að standa í skjóli, þegar haröneskju
tíö er, lieldur en á bersvæöi? Jú, vissulega.
Eg veit til þess, aö garðar hafa verið bygöir hrossum til
skjóls í slæmu veðri, og ekki heföu brossaeigendur gert þaö,
ef þeim heföi ekki sýnst þaö full þörf; jú, vissulega var þaö
þörf, og er það enn í dag. En þaö er ekki nóg, aö byggja skjól-
garðana, það þarf að halda þeim viö, svo best skýla þeir
hrossunum, aö þeir séu sem fullkomnastir í fyrstu og síðan
haldiö vel viö.
Best væri að hýsa hrossin í áhlaupa hríöum, því þaö er
þeim fyrir bestu. Ef menn geröu þaö, þá er eg viss um, að
margur hrossaeigandinn gengi ánægöari til hvílu sinnar að
kvöldinu og svæfi rólegri aö vita hrossin sín inni i húsi, held-
ur en ef þau heföu verið úti í slæmu veðri.
Sumir hafa þann siö, aö gefa hrossunum sínum heytuggu,
eftir áhlaupa hriöar, til aö fylla þau, og er þaö vel gert. En
áreiðanlega heföi hrossunum veriö betra, aö vera inni í húsi