Dýraverndarinn


Dýraverndarinn - 15.07.1917, Qupperneq 14

Dýraverndarinn - 15.07.1917, Qupperneq 14
62 DÝRAVERNDARINN yfir hríðina og fá þessa litlu heytuggu, heldur en standa úti og fá heyiö á eftir hríöarbylnum. Nokkra menn þekki eg, sem taka hrossin sín til hýsingar, strax í byrjun vetrar, og er reynslan búin aS sýna þaS og sanna, aS þaS þarf ótrúlega lítiS fó'Sur handa þeim hrossum, sem tekin eru í haustholdum, og hýst yfir vetrarnæturnar, en beitt á daginn þegar veSur leyfir. Þessa aSferS ættu allir aS nota sem geta. Þá liSi hrossun- um betur og eigendunum lika. A. B. SITT AF HVERJU Eftir Jóhann ögmund Oddsson. SUMARGESTIRNIR VoriS er komiS meS ylinn og ljósiS, og þótt kalt hafi verið undanfariS, þá er eins og það gleymist viS þaS aS heyra til fuglanna — sumargesta vorra. Náttúruhvöt þeirra kallar þá hingaS þrátt fyrir óblíSu náttúrunnar og rándýrshátt mann- anna. — Þótt ekkert væri annaS, sem minti okkur á komu sumarsins en fuglarnir, þá er þaS nóg til aS gera okkur léttari í skapi. Söngur þeirra og fjaSraþytur vekur okkur af vetrar- dvalanum, starfsþrá þeirra og vinnukergja viS hreiSurbygg- ingar hryndir huga vorum lika til framkvæmda, svo margt getum viS af þeim lært, vonumst vér því til aS sveitabörnin yfirleitt taki á móti þeim meS opnum örmum, og bjóSi þá ekki síSur velkomna en eldra fólkiS; lofi þeim aS vera í friSi meS egg sín og unga, svo aS þeir kveSji okkur á næsta hausti meS sætum sumarhugleiSingum, en ekki meS sár og sorg í hjarta. Ef börnin taka þannig á móti sumargestum vorum, þá verSur ])ess ekki langt aS bíSa, aS þeir fullorSnu geri þaS lika. ÓSIÐUR Ofmargir eru þeir drengir hér í Reykjavík, sem virSist þykja gaman aS því, aS arga hundum saman, til aS sjá hverjir muni

x

Dýraverndarinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dýraverndarinn
https://timarit.is/publication/598

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.