Dýraverndarinn


Dýraverndarinn - 01.01.1931, Side 11

Dýraverndarinn - 01.01.1931, Side 11
DÝRAVERNDARTNN 5 En af Káp er þa'ð afi segja, a'ð hann gleymdi aldrei þessu áfalli og mundi einatt eftir læknum. Eftir þetta þegar ís var á læknum og sau'ðirnir reknir yfir hann, dró Kápur sig til baka þegar að læknum kom, og lét hinum sauðunum eftir a'ð fara á undan. En þeg- ar siðasti sauðurinn var kominn yfir, tók Kápur undir' sig stökk mikið, og reyndi að komast hjá því að þurfa að tylla fótum á ísinn. Leyndi sér ekki. að hann hafði beyg af læknum og yfir höfuð fanst mér hann ísragari eftir þetta en áðtir. — Vorið sem Kápur varð 7 vetra, hafði eg vista- skifti og fór alfarinn frá Heggsstöðum. Næsta vetur geisa'ði liráðafár þar um sveitir. Fórust úr pestinni ;o fjár á Iíeggsstöðum, og var Kápur síðasta kindin. Morgun einn, er sauðamaður kom til húsanna, lá hann dauður innan við hurðina. Erétti eg síðar. a'ð hans hefði verið meira saknað en allra hinna kind- anna, sem fórust. Og sjálfum mér fór svo, er eg spurði afdrif Káps. a'ð mér fanst eg eiga þar á bak að sjá gömlum og góðum vin. Guðmundur F. Guðmundsson. Bókhlöðustíg 6. Skipshundurinn. F.ftir Syllandcr Brckkc.*) Peggi var skipshundur, og hann var ákaflega u.pp með sér, bæði af titlirium og þá ekki siður af stöðunni, sem hann hafði á skipinu. Ef einhverjum hefði orðið það á. að spvrja hann, hvað það gæti nú eiginlega verið, sem hundur hefði að starfa á skipsfjöl, þá hefði Peggí einungis fitjað upp á trýnið með fyrirlitning á slíkum skilningsskorti þess, liver vandastaða það er að vera skipshundur. Enginn vissi það betur en Peggí, !ive margt það var, sem rækja þurfti og enginn var sá hundur. sem betur stæði í stöðu sinni né trúlegra rækti hin niargbrotnu skyldustörf. Rismál hans vóru fyrr en allra annarra á skipinu. Hann vaknaði stundvíslega *) Syllander Brckke, sá er skráð hefir sögu þessa, er norskur sjómannaprestur. Hann var áður forstöðumaður norska siómannatrúhoðsins i Valencia á Spáni, en gegnir nu samskonar starfi í Philadelphia i Bandarikjunum. klukkan fimm á hverjum morgni og þegar hann hafði geispað og teygt úr sér og snurfusað sig sæmilega á legubekk „timburmannsins“, þar sem hann hafði náttstað að jafnaði, þá var það fyrsta starf lians að vekja timburmanninn. „Hann er áreiðanlegri en nokkur vekjaraklukka“, sagði timb- u.rmaðurinn jafnan, þegar eitthvað var minst á Peggí. Og þetta vóru engar ýkjur. Peggi var hverri vekjaraklukku áreiðanlegri og víst er þa'Ö, að timb- urmaðurinn hefði ekki komizt svo jafn-snemma á fætur, sem nú var raun á, ef skipshundsins hefði ekki notið við. En timburmaðurinn hafði þó ekki hugmynd um, hvílíkt dómadags basl það var fyrir Peggí litla glorhungraðan, að vekja hann á hverj- um einasta morgni. Peggí liyrjaði venjulega á því. a'ð glepsa nokkurum sinnum í brekánið, en það var ekki annað en byrjunin, þvi að timburmaðurinn varð þess aldrei var. Þá varð Peggí að gelta ofur- litið, en það var eins og timburmaðurinn heyrði ekki til hans, liversu hátt sem hann gelti. Þá hafði Peggi hugkvæmst þrauta-ráð, sem jafnan dugði, en það var það, að bita i nefið á timburmanninum. Þegar Peggi hafði gengið úr skugga um, að hann væri glaövaknaður og farinn að klæða sig, fór hann í eftirlitsferð til allra hinna skipsmannanna, til þess að ganga úr skugga um, hvort nokkur væri sof- andi. Ef hann varð þess var, að einhver hefði ekki brugðið Idundstöfum, þá þaut hann, sem kólfi væri skotið, upp i fletið til svefnpurkunnar, glepsaði i nefið á honum, og stóð þá sjaldnast á því, að menn flýtti sér fram úr. Auðvitað hafði Peggí sjálfum hugkvæmst þessar ,,nef-glepsur“, sem svo vóru nefndar, og hann var ákaflega hreykinn af þessari hugkvæmni, — sem honum varð að vísu á að nota oftar en skyldi. — Svo bar til að skipstjórinn hafði einu sinni boðið gestum úr landi út á skip til sín, i miðdegisveizlu. Peggí hafði skilizt það, að eitthvað væri á seyði. Hann haföi ráðið það af því, að matsveinninn hafði verið að bjástra við allskonar ilmandi góðmeti all- an fvrra hluta dagsins og Peggí hafði því sætt lagi, að komast inn i borðsal skipstjórans í tæka tið, í þeirri von, að honum mundi áskotnast ætur liiti. Honum hafði hugkvæmst sjálfum, hvernig bezt væri að koma ár fyrir borð þegar svona stóð á. Og venjan var sú, að enginn stóðst augnatillit hans og þá snildarlegu hræsnisgrimu, sem honum tókst að setja upp. Peggí bjó um sig undir borðinu. Þar

x

Dýraverndarinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dýraverndarinn
https://timarit.is/publication/598

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.