Dýraverndarinn


Dýraverndarinn - 01.01.1931, Page 12

Dýraverndarinn - 01.01.1931, Page 12
6 DÝRAVERNDARIN N var hann bæði falinn og þó nálægur, ef eitthvað skyldi niður falla. En honum brugðust vonir, ekk- ert féll niður á gólfiö. Og þarna lá hann og lét ekk- ert á sér bæra, -—■ soltinn og þreyjandi að fá bita af því, sem á borð var borið. Það fór svo, að hann gat ekki setið á sér. Hann færði sig að fótunum, sem honum leizt bezt á, und- ir bor'Öinu. En hann var all-óheppinn í valinu, þvi að afleiðingin af áleitni hans við fæturna á henni jómfrú Snilesen, varð óp mikið, sem heyra mátti um alt skipið. Og Peggi laumaðist á burtu sem hraðast. Skipstjórinn hafði leitað að lionum, með svipuna í hendinni, en Peggi haföi falið sig í rúmi timburmannsins, — og þar var hann óhultur. Síð- ar um daginn hætti Peggí sér aftur inn í borðsal skipstjórans. Hann var ekki vonlaus enn um það, að sér mundi áskotnast einhver krásar-lriti. En nú var þar dauðaþögn inni. Á legubekkjum og í stólum lágu og sátu veizlugestirnir, sprengsaddir, og sváfu sér miðdegisblund, En Peggí var ekki vanur því, að menn svæfi um hábjartan daginn. Hann hugði það því vera sjálfsagða skyldu sína að vekja fólkið, með „sinni aðferð“. — Hann gekk á röðina og beit í nefið á öllum, undur-varlega en ákveðið þó, — en ekki verður um það sagt, hvort verið hafi tilviljun ein eða hefndargjöld, að Peggí beit þétt- ingsfast i nefið á jómfrú Snilesen. Að þessu sinni komst Peggí ekki undan. Skipstjórinn náði í hann og lék hann svo illa með svipunni, að hann faldi sig það sem eftir var dagsins á afviknum stað og grét þar fögrum hundstárum yfir harðneskju manna og vanþakklæti. En nú er bezt að segja litið eitt af fyrri æfi skipshundsins. Peggí hafði komið út á skipið i Plavana. Hann hafði laumast „um borð“ og komið „aftur í“ til hásetanna, sem þegar höfðu kent í brjósti um hann, vesaliriginn litla, svangán og illa til reika. Upp frá því var hann á skipinu og varð eftirlæti skips- hafnarinnár. Hann, —• skipshundurinn — varð óaðskiljanlegur félagi þeirra allra, karlanna. sem á skipinu vóru. Peggí hafði lika fundið það f!jót- lega, að þarna var gott að vera, og ekki hefði hann fyrir nokkurn mun viljað skifta á kjörum sínum nú, og félaganna, sem á landi vóru. Peg'gí henti ýmsar yfirsjónir, eins og gerizt og gengur um byrjendur í sjóferðum. Einu sinni hafði þann étið og rifið í agnir ölj ástabréf eins háset- anna. Ástalméf jressi hafði hésetinn geymt nær þvi níu ár, — en aldrei lrafði orðið neitt frelcara úr því ástarbralli. Liklega hefir Peggí haft veður af þessu og þessvegna tekið það fyrir að éta bréfin og rífa þau, þvi að hásetinn, sem varð ákaflega reiður íyrst i stað, varð liundinum elíki síður þakklátur þegar fram í sótti, — einmitt fyrir þennan lirekk, — vegna Jiess, að hann frétti þá, að stúlkan, sem bréfin hafði skrifað, var gift fyrir mörgum árum. Og nú hafði Peggí hjálpað honum til að losna vi'ð þetta farg .... og liásetinn eignast nýja kærustu. En bréfin frá henni lét lianri eltki vera á glámbekk, — hann lok- aði þau niður í kistu, svo að Peggi næði ekki til þeirra. 1 hvert sinn, sem Peggí sá hann vera að koma fyrir Inréfunum, horfði hann á lrásetann með spekings-svip, — eins og lesa mætti þessa Irugsun í augnaráðinu: „Láttu nú til skara slcríða, félagi, — því að öðrum kosti ét eg þessi bréf líka“. Og hásetinn ltafði sagt það, að Peggí viðstöddum, að nú ætlaði hann eklci að lúða jjangað til einhver annar slcarfur tælci stelpuna frá sér. Peggí var fallegur hundur, — en fegurra var þó en ytri ásýndir, trygglyndi lrans. — Þegar slcipið var einlrversstaðar í höfn, var þess jafnan gætt áð- ur en létt skyldi, hvort Peggí væri „um borö“. Ef það hafði komið fyrir, að hann hefði skroppið í land, jnitu hásetarnir í allar áttir um bryggjurnar, til þess að leita hans, og léttu aldrei fyrr en þeir fundu hann. Þetta fanst Peggí Irenda til þess, að þeir rnætti ekki án lians vera. Kunningjum sínum í landi sagði hann oft frá því, hve ábyrgðarmikla stöðu hann lrefði á skipinu, og jteir vóru rniður sin af aðdáun. En þegar þeir vóru að ympra á jwí, lrvort hann gæti nú ekki boðið })eim upp á liressi- legan miðdegisverð á skipsfjöl, þá varð Peggí að vitna í sjóferðalöggjöfina og segja Jreim, að þar stæði, að öðrum hundum en skipshundinum væri eklci leyft að koma út á skipið. Þessurn lagastaf urðu jreir að lúta. Peggí liafði lært öll ósköp af listum. Stýrimaður- inn var ójireytandi kennari. Plann Irafði varið mörg- um stundum til jiess, að kenna Peggi að sitja á aftur- löppunum, með pípu eða skál í kjaftinunr, — og ýmislegt fleira liafði hann kent Peggí, — jtað sem eklci geta gert. aðrir en liundar. — Einu sinni hafði liann verið fcnginn til að sýna listir sínar í Sjómanna- stofu, og jrar hafði hann hlotið svo ákaflega aðdá- un, að sunnudaginn næsta var honum boðið, ásamt

x

Dýraverndarinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dýraverndarinn
https://timarit.is/publication/598

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.