Dýraverndarinn


Dýraverndarinn - 01.01.1931, Blaðsíða 21

Dýraverndarinn - 01.01.1931, Blaðsíða 21
DÝRAVERNDARINN 15 hestana. Og af þvi a<5 alt athæfi hundsins þá, þótti einkennilegt i sambandi viÖ þaÖ sem fram kom á eftir, ætla eg að segja frá því nokkuð nánar. VoriÖ 1915 veiktist Ólafur Árnason, framkvæmd- arstjóri á Stokkseyri, mjög snögglega, svo aÖ nauÖ- synlegt þótti a<5 flytja hann suÖur. Þá var engin Ijifreiö austanfjalls, Hellisheiði órunnin, en fært bif- reiÖum i'ir Reykjavik og upp í Hveradali. Var eg beÖinn aÖ bregða skjótt við og ílytja Ólaf vestur yfir heiði. B.jóst eg því með skyndingu, en á meðan var búið um Ólaf i fjaðravagni fjórhjóluðum og yfirtjölduðum, og með hann komið vestur að Kala- stöðurn. Þá var eg ferðbúinn. En nú brá svo viö, að Stubbur hreyfði sig hvergi, var eitthvað svo und- arlega fálátur og fór allur hjá sér. Og þegar kona mín sá, að hann ætlaði að verða eftir, er við fór- um, kallaði hún til hans: „Stubbur minn! Ætlarðu ekki að fylgja honum Snjólfi?" Varð hann þá enn þá lúpulegri og ýlfraði raunalega. Og eftir að eg var farinn, hafði hann setiö á grjótgarðinum nokk- ura stund og spangólað eitthvað svo sárt og ámát- lega. Eg man eftir að mér þótti athæfi hundsins undarlegt, og ekki laust við að þeirri hugsun skvti <)]<]) hjá mér, að ferðin mundi ekki ganga að ósk- um. Þó gekk alt vel og greiðlega. Við vórunr tveir með vagninum og náðum á tilsettum tirna vestu" í Hveradali. Þar beið bifreið, sem flutti Ólaf til Reykjavikur. En af ]rví að kvekl var komið. héld- um við áfram niður á Kolviðarhól og tókum okkur þar gistingu. Daginn eftir héldum við svo heim, og var fögnuður Stuhbs mikill að sjá mig heim- kominn. Og það sagði kona ntin, að hún hefði sjald- an orðið fegnar heimkomu minni en þá. Svo illa hafði það slegið hana, er Stubbur vildi ekki fylgja mér, að hún gat aldrei á heilli sér tekið, á meðan eg var i burtu, og var aldrei ugglaus um að eitt- hvert slys mundi henda mig. En einni stundu eftir heimkomu mína var símað að sunnan, að Ólafu" væri látinn. Hafði hann verið fluttur i sjúkrahús og gerður á honum holskurður, sem hann ekkí bold;. svo aÖframkominn sem hann var. Eg ætla engum getunr að leiða að þvi, hvers vegna Stubbur h’-á vana sínum og fylgdi mér ekki i þetta skifti. E- stundum varð okkur hjónunum hugsað á bá leið. að Stubbur hefði eitthvað séð og haft hugboð ur- floira en okkur mennina grunaði. Sumartima einn á meðan eg átti heima á Stokk=- eyri. var eg kaupanraður hjá Þorláki bónda á Kirkju- ferju; var Stubbur með mér allan tímann og fylgdi mér hvert sem eg fór. Sólskinsdag einn vórum við að slá alllangt frá bænum, austur i svonefndu Flugu- gili. Hafði eg farið snöggklæddur að heiman, en svo heitt gerðist urn daginn, að eg fór úr vestinu og lagði þaú hjá mér i slægjuna. Stubbur hafði fylgt mér á engjarnar, eins og vant var. Síðari hluta dags var eg sendur heirn til þess að lilaða úr heyi. sem heim var reitt, og var eg að því fram á kveld. Um kveldið varð eg þess var, að Stubbur var elcki heima við, og hafði enginn séð hann. Að vísu hafði mér gleymst að hirða vesti mitt, er eg hætti að slá og fór heirn. en gat þó varla trúað þvi, að Stubbur væri að annast urn vestið og það eitt tefði heim- komu hans. Næsta morgun var komin rigning, en Stubbur sást hvergi. Fórum við þá að rista torf, sem reitt var heim jafnóðum, og þakið með þvi heyið. sem upp var borið kveldinu áður. Vórum við að fást við þetta fram eftir deginum og bjuggumst ekki á engjar fyrr en hallaði af hádegi. Þegar aust- ur i Flugugil kom. reis Stubbur upp og sást þá að hann hafði legið á vestinu allan timann. Og það kom oftar fvrir. að Stubbur lá timunum saman hjá einhverium hlut. eða flík. sem hann vissi að mér tilhevrði. og hreyfði sig ekki þaðan fyrr en að var komið. Er eg næstum viss um, að hungurmorða hefði hann orðið fyrr. en hann hefði vfirgefið ]iað, sem hann hafði tekið að sér að gæta á þennan liátt. Slík var skyldurækni hans og trúmenska. Eitt af því, sem allra einkennilegast þótti um Stubb var óbeit sú. seni hann hafði á öllum bátum. enda kom það aldrei fyrir, að hann næðist upp í ferju. bó hann sæi mig stiga upp í hana. Á meðan eg átti heima á Stokksevri. reri eg 7 vertíðir i Þor- lákshöfn. Oftast þegar eg fór í verið, var eg ferj- aður yfir Ölfusá i Óseyramesi og fylgdi Stubbur mér iafnan að ánni. En svo var hann var um sig. að nldrei ná'Sist hann. og reyndi eg þó oft, mest bó til ganrans. að koma honum upp í ferjuna. Á meðan eg var ferjaður yfir. lá hann við ána. en begar liann sá að eg labbaði vestur sandinn, reis hánn á fætur og hélt heimleiðis. Einu sinni komst eg á ís vfir Ölfusá, er eg fór í verið og fylgdi Stubbur mér þá alla lieð út i Þor- lákshöfn, og var þar hjá mér fram undir páska. Átti hánn þar góða og náðuga daga, gekk á milli góðbúanna og var mikill aufúsugestur í hverri búð. Þá vertíð reri einnig í Þorlákshöfn, Sigurjón son-

x

Dýraverndarinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dýraverndarinn
https://timarit.is/publication/598

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.