Dýraverndarinn


Dýraverndarinn - 01.01.1931, Side 24

Dýraverndarinn - 01.01.1931, Side 24
18 DÝRAVERNDARINN i. Borgfirðingur. Fyrsti gæðingurinn, sem eg eigna'Öist, var kynjað- ur úr Borgarfirði, og nefndi eg hann því Borgfirð- ing. Sigfús Eymundsson, mágur minn, gaf mér hann í sumargjöf vorið 1891. Borgfirðingur var grár að lit, hafði háan en liúf- an vilja, har sig ágætlega, snjallvakur og ganglag- inn. Þegar eg eignaðist hann, var hann einn af þeim allra styggustu hestum, sem eg hefi komizt í kynni við. Náðist ekki nema í aðhaldi, og ekki mátti sleppa honum með hnakk og beizli, því þá var hann sam- stundis þotinn út í veður og vind og oft mikill elt- ingur við að ná honum. Ekki hafði eg lengi átt hann, er mér tókst að spekja hann svo, að óhætt var að sleppa honum með reiðtýgjum. Byrjaði eg með að hafa .í taumnum langan enda, klappaði klárnum og gaddi við hann, en við það spektist hann svo, að þegar lengra leið á sumarið, hætti hann með öllu að rása frá mér. Borgfirðingur var með afbrigðum vegvís og svo athugull og gætinn um margt, að aldrei kom það íyrir, eins og hann var þó viljamikill og framsæk- inn, að hann sneiddi ekki hjá þeim hættum eða ófær- um, sem framundan vóru. J>ví til sönnunar ætla eg að segja frá litlu atviki, sem fyrir mig kom haust- ið 1894. Eg var þá að koma norðan úr landi, frá Sauðárkróki, í öndverðum nóvembermánuði og fór sveitir, eins og kallað er. Meðfram Hvalfirði hrepti eg landsynnings rolc með ofsa rigningu. Frá Þyrli rak eg Borgfirðing einan, því eg' var þá orðinn að- eins meö tvo hesta. Eg hafði ásett mér, að ná heim til mín í Jveykjavík um kveldið, og til þess að það mætti takast, ætlaði eg að stytta mér leið með því að fara Reynivallaháls og Svínaskarð. Þegar að imssá kom, sá eg að hún mundi i miklum vexti, enda var rokið og rigningin eins og það getur mest orðið þar um slóðir. Þó ætlaði eg aö láta slarka yfir ána, en þá tók Borgfirðingur til sinna ráða, sneri frá ánni og þaut i rokspretti niður á brú og nam ekki staðar fyrr en heima í lilaði á bænum Fossá. Varð eg því að riða á eftir lionum, en þeg- ar eg steig af Ijaki í hlaðinu á Fossá, sögðu heima- menn: ,,í þetta sinn liafði hesturinn vit fyrir þér, Daniel!“ Áin var með öllu ófær, og þó að eg hefði slark- að einhvernveginn yfir hana, fullyrtu heimamenn, að Laxá i Kjós mundi þá einnig vera óreið undan Möðruvöllum. Eg lét mér þetta að lcenningu verða, hvarf frá þvi að fara yfir hálsinn og reið „fyrir framan“, sem kallað er. Eg kom að Neðra-Hálsi á liádegi, en teptist þar fram á næsta dag; þá var lilaupið svo úr Laxá, að slarkfært var yfir hana. Þótt Borgfirðingur væri styggur og léti elcki aðra en mig liafa hendur i hári sinu, var liann óvenjulega hagaspakur, enda gekk hann dögum saman á mýr- unum hér innan við bæinn, án þess að eftir hon- um þyrfti að líta. En túnsækinn þótti hann í frek- ara lagi, enda vóru flest tún þá sumpart ógirt eða illa girt. Átti hann því fáum vinum að fagna á með- al bænda liér í nágrenninu, eins og lílca siðar kom á daginn. Sunnudag einn — eg man ekld livort það var sum- arið 1896 eða 1897, — ætlaði eg að riða Borgniu- ing eitthvað burt úr bænum, en þá fanst liann hvergi, og þótti mér það undarlegt, því aldrei hafði hann sjálíráður fariö úr heimaliögum sinum, svo að eg vissi. Litlu síðar frétti eg þó af honum fyrir norð- an Leirvogstungu og lagði samstundis á stað að sækja hann. Stóð það heima, að klárinn fann eg þar á sömu slóðum og mér var sagt til Jians, en heldur brá mér i brún, er eg sá hann, því að rist hafði verið niður úr öðrum afturnáranum. Þóttist eg þá þegar viss um, að hann hefði, að vanda, gerzt nærgöngull einhverju túninu hér nærlendis, en ein- hver sláttumanns-óþokki reiðst því, slöngvað til laans orfi með ljá og veitt lionum þennan áverka. Má þó undarlegt heita, að slík mannvonzka skuli eiga sér stað, og að nolckur maður skuli vera svo ófyrirleit- inn og illa innrættur, að skeyta þannig skapi sínu á dýrunum, sein ekki liafa annað til saka unnið, en að bera sig eftir björginni þar sem hana er bezta að fá. Hestinn tók eg heim með mér í Reykjavílc og græddi hann, svo hann varð jafngóður. Þetta var í eina skiftið, sem Borgíirðingur reyndi að strjúka. Hann var fæddur og uppalinn hjá Daniel Fjeldsted í Hvítárósi, og þangað hefir hugurinn hvarflað — heim til æskustöðvanna ætlaði hann að flýja og þvi var lagt til stroks — þegar ómenni'Ö liafði veitt honum áverkann. Honum var líka leyft, þegar leið á sumarið, að fara þangað i orlofsferð og leika sér þar um æskuhagana íram eftir vetrin- um. Og síðar lét eg nafna minn á Hvítárósi fá hann,

x

Dýraverndarinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dýraverndarinn
https://timarit.is/publication/598

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.