Dýraverndarinn


Dýraverndarinn - 01.04.1931, Qupperneq 3

Dýraverndarinn - 01.04.1931, Qupperneq 3
U m hesta, háttu þeirra og vit. Eftir Daníel Daníelsson, fyrrum ljósmyndara. (Frh.) 2. Krummi. HaustiÖ 1898 eignaðist eg brúnan íola, sem eg nefndi Krumma, frá góðkunningja mínum, Þor- steini hónda Péturssyni á MiÖfossum. Var folinn ])á lítið taminn, en bráðléttur og viljamikill; fallega vaxinn og traustur vel, eftir aldri. Þó að ]>að 1)yki ef til vill ekki fallegt til frá- sagnar, þá reið eg folanum frá Grund í Skorradal til Reykjavíkur, að mestu leyti einhesta, á hálfum öðrum degi, en óskemdur var hann og fjörið engu minna er ferðinni lauk, en þegar eg lagði upp frá Crund. F.g fór frá Grund að Bjarteyjarsandi á Hvalfjarðarströnd og gisti ])ar um nóttina. Morg- uninn eftir kom eg við í Brekkurétt, en tafði ])ar of lengi til þess að hreppa góð forvöð fyrir svo- kallað Klif, sem liggur vestan við Þyril. Var þá fallið talsvert að, en sleipt undir fæti á þangivöxnu stórgrýtinu. Þrátt fyrir það skilaði folinn mér heil- um á húfi úr þeirri svaðilför, en háðir vórum við blautir, ]>egar undan klifinu kom.1) Þetta vóru fyrstu kynni okkar Krumma, en ekki þau síðustu. Eg náði ekki heim til mín í Reykjavík, fyrr en um miðnætti. Hafði eg þá ekkert hús til þess að skjóta folanum inn í, enda var veður hlýtt, svo að eg gekk frá honum í porti heima hjá mér og gaf 1) Undir þessu klifi hafa margtr druknað. Daníel á Krumma vorið 1899. honunt vel. E11 um morgúninn, ]>egar komið var á fætur, var mér sagt, að folinn væri horfinn úr port- inu. Klæddi eg niig þá í skyndi og fór að leita hans. Fann eg hann fyrir ofan Elliðaár upp á Jörfa, og var hann sýnilega að halda í áttina heim til sín. Þegar heim kom, tók eg folann í hús og fór að gefa honum. Hafði eg hann til húsa hjá kunningja mínUm, Magnúsi steinsmið Guðnasyni, sem ])á Ujó á Laugaveg 48. Eg átti þá heima á næstu grösurn, i .augaveg 44, svo að skamt var á milli. Enda mátti oft rekja spor mín um veturinn að húsi ])ví, sem Krummi var í. Ekki leið á longu, að með okkur

x

Dýraverndarinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dýraverndarinn
https://timarit.is/publication/598

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.