Dýraverndarinn


Dýraverndarinn - 01.05.1939, Blaðsíða 11

Dýraverndarinn - 01.05.1939, Blaðsíða 11
DÝRAVERNDARINN allan bæinn og kringum hann. J >egar leitin reynd • ist árangurslaus, þá lagÖist hún í hvolpabæliÖ og lá þar einn dag, en íór svo heim til sin aftur. Emil Jónsson bondi i Borgarfir'Öi eystra hefir sagt mér eftirfarandi: ViÖ áttum lengi tík sem J-’íla hét, mestu vitskepnu. 1‘aÖ var regla þegar hún átti hvolpa, aÖ einn eÖa fleiri voru aldir, en þó var eiou sinni brugðiÖ út af þessu og hvolparnir allir drepnir. Eg hefi ekki séð öllu átakanlegri sjón, en sjá hvernig hún bar sig þá. Hún lagðist í bælið, þar seni hvolparnir liöfÖu vérið, og gaf ekkert hljóð frá sér, en hún kiptist til likt og hún hefði ekka og vatnið rann af aug- um hennar í lækjum ofan trýnið. Eitt sinn voru aldin á lienni þrír livolpar, og liverju sem það var að kenna, þá barst hún litt af og fékst ekki til að bragða nokkurn nrat. Við krakk- arnir vorum að dekra við hana og færa henni alls konar kræsingar, sem við vissum að henni þóttu best- ar, en alt var til einskis. Pabbi segir þá: Þetta þýð- ir ekkert og það er best að taka hvolpana og drepa þá, þvi annars drepst tikin frá þeim. Píla tek.ur þá til að ýlfra, en ris svo á fætur og fer að háma i sig matinn og eftir það át hún, án þess að nokkr- ar „serímoníur" væri við hafðar. Halldór Pétursson. Frjósöm móðir. Márgir munu hafa lreyrt getið um Saurakúna (frá Saurum í Laxárdal), sem vísan segir að bor- ið hafi þrisvar á ári. Mér þykir nú sennilegt, að þetta hafi elcki þótt trúlegt. Hér fer á eftir saga af kind, sem var óvanalega frjósöm. Hún var köll- uð Svartkolla á Melum i Borgarfirði. Svartkolla var fremur falleg; hún var undan mó- rauðri á austan úr Rangárvallasýslu, sem oftast var tvilembd. Snemma i maí 1937 fæddi Svartkolla lamb, sem dó strax, en sökum þess, hve stygg hún var, þótti ekki hugsanlegt að venja undir hana, þótt hún tæki sér nærri missinn. Um haustið kom Svartkolla af fjalli og var þá ekkert athugað, hvernig ástatt var með hana. En á síðasta sumardag fanst hún borin; kom þá með hvítan lirút, sem var hinn hressasti, þó að -vorblið- an lirosti ekki við honum, heldur haustkuldinn, því að,á var norðanstormur með fjögra stiga frosti. Var nú Svartkolla tekin inn og búið um hana í hlöðu. Þar var hún fram í janúar, en var ])á sle.pt í ærnar. Aldrei var hún látin út, utan þegar átti að baða hana. Var þá svo mikill eltingarleikur við hana, að lambið, sem fylgdi lienni, varð svo þjak- að, að við sjálft lá, að því yrði að lóga. Það lirest- ist þó aftur og varð falleg kind. Svo i vor 25. maí ber Svartkolla og á þá hrút og gimbur, sem bæði lifðu. Jíafði liún þá náð þvi að l)era þrisvar á rúmu ári. Hún liefir oft áður verið tvíleml)d. Nú er Svartkolla orðin svo gömul, að börnin verða ekki fleiri. Hún er tiu vetra og í ráði að lóga henni. Eru þó lítil ellimörk á henni að sjá. 11. E. Smávegis. Kyrkislöngur og rottuveiðar. Forstjórar veitingahúsa i ýmsum smábæjum Mexikó-ríkis, einkum í suðurhluta landsins, hafa tekið upp þann sið, að nota tamdar kyrkislöngur til rottuveiða. Slöngur þessar eru heldur smávaxnar, alt að þrem metrum á lengd, og taldar óskaðlegar mönnum. Halda forstjórarnir því frarn, að þær sé miklu duglegri og mikilvirkari rottu-banar, en hund- ar og kettir, og í raun og veru megi þær heita ó- missandi. Krúnu-hjörtur. Hann er talinn viðlíka sprettharður og snarpasti veðhlaupahestur. Er hvárrtveggi sagður svo greið- ur á stuttum spretti, að svari til 60—65 km. á klukkustund. Karakúl-hrútarnir. — Hvernig er það eiginlega með þessa karakúl- hrúta, sem alt fé ætla nú að drepa? — 13ara svoleiðis, kunningi, að þeir komu eins og „þjófur úr heiðskíru lofti!“

x

Dýraverndarinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dýraverndarinn
https://timarit.is/publication/598

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.