Dýraverndarinn


Dýraverndarinn - 01.12.1966, Qupperneq 21

Dýraverndarinn - 01.12.1966, Qupperneq 21
búskap. Hafís lá hér við Austur- og Norðausturland langt fram á vor, og stafaði frá honum ærið bitur kuldi, norðannæðingur og næturfrost, sem olli því, að gróður allur átti mjög erfitt uppdráttar. En sauðburðurinn hófst á sínum vana tíma — eða frá 15. til 20. maí. Þetta umrædda vor gerðist sú stutta saga, sem ég nú sendi Dýraverndaranum að gamni mínu. Þannig hagar hér til, að um það bil tíu mínútna gang frá bænum á ég beitarhús, sem heita í Hlíð, og þar lief ég fé mitt. Fyrsta ærin bar 14. maí. Ekki var um annan kost að ræða en að hafa ærnar á tún- inu og í húsunum, gefa þeim hey og mat og vera hjá þeim nætur og daga. Það mun hafa verið 29. maí. Dálítil gróðurnál var lekin að skjóta upp kollinum og birkið farið að springa út. liúið var að sleppa nokkrum einlembd- um ám, og við Borgþór, sonur minn, fimmtán ára gamall, fórum nú að vanda eftir hádegið að liuga að þessum ám. En hvað er nú þetta? Þriggja vetra gömul ær, grá á litinn, stendur jarmandi við tún- hliðið. Hún heitir Píla og er eign elztu dóttur minn- ar, Stefaníu Rósu. Ég var búinn að sjá Pílu jiennan rnorgun í hlíð- inni fyrir ofan túnið. Þá var með henni lambið hennar, grá gimbur. Nú var hún lamblaus! Við fórum nú af stað að leita að lambinu og fylgdumst að í fyrstu. Píla fór á eftir okkur. Fljót- lega skiptum við okkur. Ég fór áleiðis þangað, sem ég hafði séð Pílu um morguninn, en Borgþór fór fjárgötuna upp á hlíðarbrúnina. Nú brá svo við, að ærin l'ylgdi Borgþóri eftir, en ekki mér, og brátt sá ég, að hún var komin á undan honum. Svo liuríu þau sjónum mínum upp fyrir brúnina, en ég hélt áfram að leita í hlíðinni, hélt helzt, að lambið hefði fengið blóðsótt. En eftir nokkra stund lieyri ég, að Borgþór kallar: „Ég er búinn að finna lambið-“ Ég varð nú bæði glaður og forvitinn og flýtti mér upp á brúnina. Þegar við hittumst, segir Borgþór mér, að ærin hafi staðnæmzt við lítinn skógarbuska og horft ofan í liann. Hann horfði og hlustaði, og allt í einu lieyrði hann jarm niðri í jörðinni. Hann fór Jrá að greiða í sundur hrfslurnar, og svo fann hann liolu, sem ekki var stærri unnnáls en Jtað, að hún rétt aðeins rúmaði lambið. En hún reyndist meiri um sig, Jregar niður kom, og svo djúp var hún, að Borgjjór náði einungis í kollinn á lambinu, Jjeg- ar hann rétti handlegginn eins langt niður og hon- um var unnt. Þegar niður kom, reyndist vatn í hol- unni, svo að ekki hefði lambið lifað J>ar lengi, eins kalt og vatnið var. En lambinu hitnaði af móður- mjólkinni, og Jdví varð ekkert meint af Jæssu áfalli. Þessi stutta saga sannar okkur Joað ennþá einu sinni, að skepnurnar, sem við leyfum okkur að kalla skynlausar, eru Jrað alls ekki. Til hvers var Píla að koma og standa jarmandi við hliðið? Hvers vegna fylgdi hún okkur Jægar í stað eftir og vísaði Borg- Jaóri síðan veginn Jjangað, sem lambið hennar var? Auðvitað var hún að sækja hjálp og forða lambinu sínu frá að deyja úr kulda og hungri. Um Jrað Jrarf víst enginn að efast. DÝRAVERNDARINN 97

x

Dýraverndarinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dýraverndarinn
https://timarit.is/publication/598

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.