Dýraverndarinn - 01.02.1973, Blaðsíða 12

Dýraverndarinn - 01.02.1973, Blaðsíða 12
Aðalfundur Dýraverndunarfélgs Reykjavíkur Aðalfundur Dýraverndunarfélags Reykjavíkur var haldinn í Oddfell- ow-húsinu 6. maí 1973. Formaður félagsins, Marceinn Skaftfells, sagði m. a. frá því, að félaginu hefði borizt að gjöf frá Mark Wat- son lítið aflífunartæki og nokkrar kattagildrur. Rætt var um dýraverndunarmál, m. a. um hestana í borginni, Sól- skríkjusjóð, mengun vatnsins í Tjörninni, Dag dýranna o. fl. Eftirfarandi tilLögur voru sam- þykktar á fundinum: 1. Aðalfundur D.R., haldinn 6. maí 1973, skorar á garðyrkjumenn borgarinnar að gæta ýtrustu var- úðar við notkun varnarlyfja gegn meindýrum á gróðri, þar sem úð- un fer fram á þeim tíma, sem smá- fuglinn sýslar við börn og bú. 2. Aðalfundur D.R., haldinn 6. maí 1973, þakkar stjórn S.D.Í. skjót viðbrögð við björgun dýra frá Vestmannaeyjum dagana eftir að gosið hófst þar. 3. Aðalfundur D.R. fagnar því, að Olíufélögin hafa nú fengið ný tæki til hreinsunar olíu úr sjó, en þau virðast gefa góða raun. 4. í Lesbók Mbl. 15. apríl sl. var grein eftir Guðfinnu Gísladóttur, undir nafninu: „Ég sá hvernig ís- lenzku hestarnir urðu að engu". í greininni segir hún frá dvöl sinni í Sviss á hrossabúi þar sumarið 1972. Lýsing hennar á líðan hross- anna er slík, að skylt er að afla upplýsinga. Aðalfundur D.R. skorar því á stjórn S.D.Í. að afla ýtarlegra upp- lýsinga með aðstoð Dýraverndun- arfélaga um fóðrun og meðferð og tamningu, svo og aðbúnað allan, þar sem íslenzk hross eru erlendis. 5. Aðalfundur D.R., haldinn 6. maí 1973, flytur lir. Mark Watson inni- legar þakkir fyrir höfðinglegar gjafir, og þá eigi sízt dýraspítala, hinn fyrsta, sem reistur verður á íslandi. Gott er af góðum gesti að þiggja. Og í gjöfum þínum og öðrum stuðningi mun nafn þitt geymast og verða skráð meðal þeirra, er stærst og óeigingjarnast hafa unnið að íslenzkum dýra- verndunarmálum. 6. Hinn ágæti fslandsvinur og áhuga- maður um dýravernd hefur, eins og öllum er kunnugt, gefið enn eina gjöf og þá stærstu til stuðn- ings dýraverndunarmálum - dýra- spítala. Það er því mjög brýn nauð- syn, að samtökunum verður tryggð- ur öruggur tekjustofn. Aðalfundur D.R., haldinn 6. maí 1973, skorar því á aðila, sem við spítalanum eiga að taka, samkvæmt gjafabréfi, að leggja fyrir Alþingi, er það kemur aftur saman, vel undirbúið frumvarp til laga um sköttun skot- vopna, skotfæra og sprengiefna, er renni til S.D.Í. Fráfarandi stjórn var öll endur- kjörin og einnig varastjórn. Ár- gjöld félagsmanna eru nú kr. 200,00. 12 DÝRAVERNDARI N N

x

Dýraverndarinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dýraverndarinn
https://timarit.is/publication/598

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.