Dýraverndarinn - 01.02.1973, Blaðsíða 25

Dýraverndarinn - 01.02.1973, Blaðsíða 25
Bréfum svarað Alltaf er nokkuð um að Dýra- verndaranum sé skrifað og spurt um meðferð ýmissa dýra. Þessum bréfum er svarað eins vel og kost- ur er á. Nú höfum við ákveðið að birta nokkur þessara bréfa og svör- in við þeim, til fróðieiks og skemmtunar. Lesendur eru hvattir til að skrifa blaðinu, bæði til að fá ráðleggingar og einnig ef þeir vilja koma einhverju efni á framfæri. Utanáskriftin er: Dýraverndar- inn, Pósthólf 993. Reykjavík. Aldur hamstra og frjósemi. Við búum í mjög lítilli íbúð, en til þess að börnin mín fengju að hafa eitthvert dýr á heimilinu gaf ég þeim tvo hamstra. Ég held að það sé par. Geta þeir átt unga í svona litlu búri (þeir eru í venju- legu hamstrabúri) ? Hvað geta þeir orðið gamlir? S. V., Reykjavík. Svar: Hamstrar eru yfirleitt mjög frjó- samir og mjög sennilegt að þeir eignist unga. Þeir verða ekki garnl- ir, aðeins ca. 2-3 ára. Ekki hvolpa, takk! Ég á þriggja ára gamla tík og hef alltaf gætt þess vel að hún yrði ekki hvolpafull, en nú þurfum við að búa í nokkra mánuði úti á landi og ég veit að þar er mikið af hundum, hvað á ég að gera svo tík- in verði ekki hvolpafull? Ég veit að hún fer í „stand" á þessu tíma- bili. G. J., Reykjavík. Svar: Eina örugga ráðið er að koma í veg fyrir að tíkin fari í „stand". Þú skalt tala við dýralœkni og fá hann til að gefa tíkinni hormóna- sprautu. Þessar sprautur eru gefnar á fjögurra til fimm mánaða fresti, það er dálítið einstaklingsbundið, og þá er öruggt að tíkin verður ekki hvolpafull. Páfagaukar og Sebrafingur. Getur þú sagt mér, kæri Dýra- verndari, af hverju páfagaukarnir mínir vilja ekki eiga unga? Ég er búinn að eiga þá í tvö ár. Hvernig á að fara með Sebrafinkur um varptímann? Á. S. Á., Hafnarfirði. Svar: Það er ekki gott að segja af hverju páfagaukarnir þínir vilja ekki eiga unga. Stundum gengur það illa, ef aðeins eitt par er í búri, en betur, ef mörg eru saman í stóru búri, eða í búrum hlið við hlið. Ertu alveg viss um að þú sért með par? Það eru ekki allir sem kunna að þekkja kynin sundur. Á fullvöxnum karlfuglum er húðin fyrir ofan nefið dökkblá, en grá- brún á kvenfuglunum. Sebrafingur nota lokuð körfu- hreiður, sem þeir klxða að innan með mjög stuttklipptum garnspott- um. Skemmtilegast er að nota hvítt eða mjög Ijóst garn. Það má alls ekki nota bómull. Þegar ungarnir koma úr eggjunum, þarf sérstakt mötunarfœði. Gott er að nota harðsoðin stöppuð egg, eða heil- hveitibrauð. Það þarf að gceta þess vel að skipta oft um mötun (á hverjum dsgi) og þvo ílátið vel um leið. Gleymdu heldur ekki að gefa fuglunum þínum ferskt vatn á hverjum degi og þvo vatnsílátið vel um leið. Islenzkir hundar. Ég sá mann á götu í Reykjavík í vor. Það er auðvitað ekkert sérstakt, en þessi maður var með gullfalleg- an hund í bandi og ég gat ekki bet- ur séð, en hundurinn hefði mjög sterk íslenzk einkenni, sperrt eyru og hringaða rófu. Ég kunni ekki við að ráðast að manninum og spyrja hann hvar hann hefði fengið hund- inn, svo mér datt í hug að spyrja Dýraverndarann. M. S., Kópavogi. Svar: Þú skalt hafa samband við Sig- ríði Pétursdóttur, Ólafsvöllum, Skeiðum. Hún er ritari Hundarcekt- arfélags íslands og ræktar sjálf ís- lenzka hundakynið. dýraverndarinn 25

x

Dýraverndarinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dýraverndarinn
https://timarit.is/publication/598

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.