Dýraverndarinn - 01.02.1978, Qupperneq 5
að þakka hinum nýju trúnaðar-
mönnum sambandsins um land allt.
Trúnaðarviannakerfið
í síðustu ársskýrslu var skýrt frá
því að byrjað væri að koma á fót
trúnaðarmannakerfi fyrir S.D.Í. um
land allt. Var öllum oddvitum
landsins ritað og þeir beðnir að
tilnefna trúnaðarmann fyrir S.D.I.
í sínum hreppi. Er svarbréf hafði
borist frá viðkomandi oddvita var
hinum nýja trúnaðarmanni ritað og
honum send ýmis gögn, svo sem
dýraverndunarlögin, búfjárræktar-
lögin, lög um fuglaveiðar og fugla-
friðun, lög S.D.Í. og árgangur 1976
af Dýraverndaranum. Fylgdi með
þessu áskriftarlisti fyrir blaðið og
trúnaðarmaðurinn beðinn að kynna
blaðið í heimabyggð sinni og út-
vega blaðinu áskrifendur. Margir
trúnaðarmannanna brugðust skjótt
við þessari bón og hafa áskrifenda-
listarnir verið að berast allt árið.
Ekki hefur heldur skort á hlýleg
bréf og árnaðaróskir blaðinu til
handa.
En trúnaðarmannakerfið hefur
sannað ágæti sitt á margan annan
hátt. Strax á þessu fyrsta ári hefur
það komið í ljós hve gott það er fyr-
ir samtök um dýravernd að eiga
slíka hauka í horni um land allt
sem trúnaðarmennirnir eru. Nú eru
þeir nokkuð á annað hundrað. Eng-
in sýsla er án þess að þar séu nokkr-
ir trúnaðarmenn starfandi. Þannig
að ef hittist þannig á að leitað er
til S.D.Í. vegna máls í hreppi sem
enn er án trúnaðarmanns er ævin-
lega hægt að leita til trúnaðarmanns
í nálægum hreppi.
Samskipti stjórnar S.D.Í. við
trúnaðarmennina hafa öll verið
mjög jákvæð og einnig leita þeir
oft til stjórnarinnar að fyrra bragði.
Það er mikil vinna að halda
svona kerfi í horfinu, en gagnið
sem er af því er ómetanlegt og svo
mikils virði að það má ekki leggj-
ast niður.
Símsvarinn
Símsvarinn hefur verið í notkun
á sama hátt og áður. S.l. ár svöruðu
Sólveig Theodórsdóttir og Sigfríð
Þórisdóttir fyrir sambandið. Nú
vísar símsvarinn á síma Dýraspítal-
ans, dýrahjúkrunarkonurnar Sig-
fríðar og Jórunnar Sörensen. Þetta
er liður í þeirri samvinnu sem er á
milli hjálparstöðvarinnar sem nú er
rekin í Dýraspítalanum og dýra-
verndunarfélaganna.
R íkisstyrkurinn
Að sjálfsögðu var knúið dyra hjá
hinu háa Alþingi og beðið um
hærri fjárveitingu til handa S.D.Í.
An árangurs að þessu sinni. Miklar
athugasemdir verða ekki gerðar við
þessa neitun hér, en þetta er bara
einn liðurinn í þeirri lítilsvirðingu
sem dýrum og dýravernd er sýnd af
ráðamönnum landsins.
Skattfrjálsar gjafir
Ríkisskattstjóra hefur verið ritað
og beðið um að þeir er gefi S.D.Í.
peningagjafir fái að draga þær frá
tekjum sínum á skattframtali.
Minningarsjóði tæmist arfur
í vörslu S.D.Í. er minningarsjóð-
ur sem ber heitið: Minningarsjóð-
ur Guðrúnar Guðfinnu Þorláks-
dóttur Schram. Sjóð þennan stofn-
aði eiginmaður Guðrúnar er hún
lést fyrir rúmum 25 árum. Þau
hjónin höfðu gert með sér erfða-
skrá og ákvað Gísli að hlutur Guð-
rúnar skyldi renna i þennan minn-
ingarsjóð er hann dæi. Hjón þessi
voru barnlaus og voru ákaflega
miklir dýravinir. Gísli Björnsson
lést snemma áárinu 1977, þá orðinn
mjög aldraður eða rúmlega 100 ára.
í þennan minningarsjóð runnu þá
allmiklar eignir. M. a. var húseign
seld og var Reykjavíkurborg kaup-
andi. Nokkuð af andvirði hennar
var greitt með skuldabréfum. En
þegar allt er upptalið og skuldabréf-
DÝRAVERNDARINN
5