Dýraverndarinn - 01.02.1978, Blaðsíða 40
Bygging dúfnahúss
Þegar byggja á dúfnahús er fyrsta
skilyrðið að velja þurran og skjól-
góðan stað, þannig að ekki renni
vatn að því, og að sjálfsögðu á að
byggja húsið þannig að það sé fall-
egt og skemmi ekki umhverfið. í
dúfnahús er best að nota vatns-
[íi '■ 1 1. 200 am ,
* X ' * k /U'/JO’yr-
1 Su* S F7=í... ( L^:
k oo»*a |
límdan krossvið. Húsið þarf að vera
vel einangrað og í því á að vera
góð loftræsting. Á húsinu þarf
einnig að vera stór gluggi og helst
á móti suðri. Betra er að hafa tvö-
falt gler í glugganum.
Að innan er áríðandi að húsið sé
eins slétt og mögulegt er til þess að
betra sé að hreinsa það.
Setpláss og hreiður: Sjá teikning-
ar. Og athugið að hafa málin ekki
minni en þar er gefið upp.
Matar- og vantsílát þurfa að vera
þannig að gott sé að hreinsa þau.
í sambandi við stærð hússins vil
ég taka fram sem dæmi, að í 8 m3
húsi er ekki pláss nema fyrir 10-11
pör af litlum dúfum eða 6—7 pör
af stórum dúfum og er þá miðað
við að ungarnir séu fjarlægðir þeg-
ar þeir eru farnir úr hreiðrinu. Sjá
teikninguna þar sem skipt er á
milli fullorðinna dúfna og unga.
Ef dúfurnar fljúga ekki frjálsar
þarf útistían að vera mun stærri en
húsið. En fljúgi dúfurnar frjálsar
skal gæta þess að gatið sé þannig
að kettir komist ekki inn.
V. S.
Opnuð hjálparstöð...
Framhald af bls. 38.
uppeldi hvolpa og kettlinga áður
en það fer að halda fram slíkum
fjarstæðum. Það verður ekki fjöl-
yrt hér meira um mikilvægi þess,
að hvolpar og kettlingar séu þenn-
an tíma hjá móður sinni, en þeim
sem eru í þeim hugleiðingum að
bæta hundi eða ketti við fjölskyldu
sína skal bent á það að fá sér ekki
yngra dýr en átta vikna. Ef því ráði
er fylgt fáið þið betra dýr, kæru
væntanlegu dýraeigendur.
Margt fleira hefur borið við á
t i
hinni nýstofnuðu hjálparstöð, en of
langt mál yrði að telja það allt upp
hér. - Það er ósk mín og von, að
stöðin verði hér eftir sem hingað
til rekin þannig, að velferð dýrsins
verði ætíð í fyrsta sæti.
J. S.
40
DÝRAVERNDARINN