Dýraverndarinn - 01.02.1978, Side 30
Hundahreinsun
S.l. haust hafði hundaeigandi í
sveitarfélagi í nágrenni Reykjavík-
ur samband við S.D.Í. vegna hunda-
hreinsunar sem átti að fara þar
fram þann dag. Sagðist maðurinn
hafa farið með hunda sína í þessa
hreinsun í fyrra og ekki vilja leggja
það á dýrin sín að fara í þetta aftur
- og láir honum það enginn sem
til þekkir og hefur smá tilfinningu
fyrir dýrum.
Þannig er, að hundahreinsunin er
framkvæmd hér á landi eftir reglu-
gerð sem mjög er komin til ára
sinna. Þegar hún hefur verið gerð
hefur hún vafalaust verið það besta
er þá þekktist og til mikilla bóta í
baráttunni við sullaveikina. En ár
og dagur er nú síðan. Á sviði
læknavísindanna hafa orðið stór-
stígar framfarir erlendis, ekki að-
eins að því er snertir lyf fyrir
mannskepnurnar, heldur einnig lyf
til dýralækninga. Það er því sárt
til þess að vita hve mjög það geng-
ur illa að koma því nýjasta og besta
inn á markaðinn hér við dýralækn-
ingarnar. Og eitt af augljósustu
dæmunum eru þessi gömlu hunda-
hreinsunarlyf. Þau eru enn notuð
víðast hvar um landið. Aðeins á
nokkrum stöðum hefur verið tekið
upp nýtt lyf, t. d. á Akureyri og í
Garðakaupstað.
Mismunurinn á verkun þessara
lyfja er sá, að gamla lyfið orsakar
gífurlegan niðurgang og engist
hundurinn sundur og saman í
marga klukkutíma, en lyfið drepur
hvorki orm né egg bandormanna
sem þó er tilgangurinn með hreins-
uninni. En nýja Iyfið drepur orm-
inn og eggin ef þau eru í innyflum
hundsins ÁN AUKAVERKANA.
Þannig, að eftir að hundurinn hefur
fengið lyfið, getur hann farið heiin
Ef gamla lyfið er notað, eru hund-
arnir lokaðir (jafnvel bundnir) inni
í einhverju húsi — kofa. Þar verða
þeir að dúsa í sex klukkustundir
eins og þeir eru á sig komnir og
þar verða þeir útataðir í eigin nið-
urgangi og annarra. Þvílíkt hrein-
læti!!!
Eftir allan þennan niðurgang eru
hundarnir teknir og færðir á kaf í
tunnur með lýsólblöndu eða svip-
uðum hreinsilegi og getur hver sem
er gert sér í hugarlund hvílík með-
ferð það er.
Þessi „böðun" hefur orðið mörg-
um hundinum alvarleg þolraun of-
an á allar kvalirnar. Eftirköst þess-
arar illu og ómannúðlegu meðferð-
ar eru oft mjög mikil og vitað er að
hundar hafa drepist. — Einnig hafa
hundar hengst þegar þeir hafa verið
bundnir í þessum kofum eftirlits-
lausir í sex klukkustundir.
Stjórn S.D.Í. hefur lengi barist
fyrir því að lögum og reglu-
gerðum um þessa „hundahreinsun"
verði breytt og að eingöngu verði
notuð lyf sem eru hundinum þján-
ingarlaus með öllu. T. d. er tillaga
þess efnis meðal þeirra tillagna sem
lagðar voru fyrir dýraverndunar-
nefnd ríkisins fyrir nokkrum árum.
Einnig hefur verið gert talsvert
af því að kynna fólki nýju aðferð-
ina við bandormahreinsun og geng-
ur það vel þegar hundaeigendur í
þéttbýli eiga í hlut, en verr þegar
um er að ræða bændur með sína
hunda, og er það út af fyrir sig at-
hyglisvert, því er ekki ævinlega ver-
ið að reyna að halda því á lofti að
sveitin sé það eina gósenland sem
hundi sé bjóðandi.
Meðfylgjandi myndir sýna
hundahreinsun með gömlu aðferð-
inni og tala þær sínu máli.
J.S.
30
DÝRAVERNDARINN