Dýraverndarinn - 01.02.1978, Side 41
Félag áhugamanna um dúfur
Stofnað hefur verið í Kópavogi
félag áhugamanna um dúfnarækt.
Ritnefnd hafði samband við gjald-
kera félagsins, Ara Þórðarson, og
spurði hann lítillega frétta af þess-
ari félagsstofnun. Hann sagði að
félagið hefði verið stofnað þann 10.
desember 1977 og núna væru í því
26 félagar. Flestir þeirra ættu dúf-
ur, en þó ekki allir.
Tilgangur félagsins væri að sam-
eina dúfnaáhugamenn í Kópavogi,
gefa ráðleggingar um meðferð
dúfnanna og fræða félagsmenn um
„Hfijarinn", eða Stéldúfan, eins og hún
er oftast kölluð á íslensku, er mjög
glcesileg dúfa ef hún fœr rétta umhirðu.
Þið, sem byggið dúfnahús og eigið dúf-
ur, gerið miklar kröfur til góðs hús-
næðis og rétts fóðurs, og gætið þess að
hafa ekki of margt í húsinu. Þið fáið
það margfaldlega launað t heilbrigðari
og fallegri dúfum.
DÝRAVERNDARINN
þær. Einnig er það á stefnuskrá fé-
lagsins að koma upp um dúfna-
þjófa, en því miður er talsvert um
slíkt.
Félagið gefur út blað og hefur
það komið út þrisvar sinnum síðan
félagið var stofnað.
Félagsmenn eru allir frekar ung-
ir að árum eða frá tíu til sextán
ára. Þó er einn fullorðinn maður
með þeim í félaginu. Það er Valde-
mar Sörensen, sem hefur stundað
dúfnarækt í áratugi og ætíð verið
ólatur að sína börnum og ungling-
um dúfurnar sínar og gefa þeim
góð ráð.
í stjórn Félags áhugamanna um
dúfur í Kópavogi eru: Stefán Bragi
Sigurðsson formaður, Ari Þórðar-
son gjaldkeri, Sigþór Þórarinsson
ritari og meðstjórnendur eru Guð-
brandur Garðarsson og Halldór
Halldórsson.
Dýraverndarinn óskar hinu nýja
félagi til hamingju og vonar að það
verði dúfum og dúfnaeigendum til
góðs.
]. S.